Fréttir

Síðasti prófdagur

Í dag er síðasti prófdagur skv. próftöflu vorannar. Prófin hafa gengið vonum framar og ótrúlegt að komið sé að síðasta prófdegi. Í dag eru enskupróf kl. 9:15, 11:15 og 13:15 og svo er heimspekipróf kl. 13:15. Sjúkrapróf taka svo við seinna dag og á mánudag og þriðjudag. Gangi ykkur sem best

Útskrift

Útskrift verður 29. maí og erum við ánægð með að geta tilkynnt að hver nemandi getur boðið einum aðstandanda með sér. Útskriftaræfing verður fimmtudaginn 28. maí kl. 17:00 fyrir þá sem útskrifast 29. maí kl. 13. Þeir sem útskrifast 29. maí kl. 15:00 mæta á æfingu fimmtudaginn 28. maí kl. 18:00. Nánari upplýsingar eru í pósti sem rektor sendi út í dag.

Heimsmarkmiðin

Forsætisráðuneytið vekur athygli á að opnað hefur verið fyrir umsóknir í ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Útskriftarneminn Sigurður Einarsson Mantyla hefur starfað með ráðinu undanfarin ár og væntanlega þarf að fylla hans skarð. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun voru samþykkt af fulltrúum allra aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna í september árið 2015. Markmiðin, sem gilda á tímabilinu 2016-2030, eru 17 talsins með 169 undirmarkmið og taka bæði til innanlandsmála sem og alþjóðasamstarfs á gildistímanum. Aðalsmerki heimsmarkmiðanna er að þau eru algild og því hafa aðildarríkin skuldbundið sig til þess að vinna skipulega að innleiðingu markmiðanna bæði á innlendum og erlendum vettvangi út gildistíma þeirra. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu heimsmarkmiðanna: https://www.heimsmarkmidin.is/forsida/hagnytt-efni/ungmennarad/umsokn-i-ungmennarad/ Umsóknarfrestur er til og með 24. maí nk.

Framkvæmdir ganga vel

Tíminn frá því nemendur fóru úr húsi í mars hefur verið nýttur til framkvæmda innanhúss. Ýmislegt hefur verið gert og ýmislegt er framundan. Ein breytingin er að innangengt verður úr Norðukjallara yfir í salernin á Matgarði og gerir það alla aðstöðu í Norðurkjallara mun betri.

Fyrsta vikan liðin

Fyrri prófavikan er liðin. Að okkar mati hafa prófin gengið vonum framar og við erum afar stolt af því hversu vel kennarar og nemendur hafa aðlagast nýjum aðferðum við að taka próf. Kennarar eru á Miðgarði og fylgjast með nemendum opna prófin, leysa þau og skila og allt fer þetta fram í gegnum Innu. Þetta er allt annað prófaumhverfi en við erum vön og gaman að sjá það virka svona vel. Gangi ykkur sem best í seinni vikunni og við bíðum spennt eftir að sjá hvernig ykkur gengur.

Prófin hafin

Fyrsta lokpróf skv. próftöflu vorsins 2020 opnaðist í Innu kl. 9:15 í morgun. Nemendur biðu spenntir heima hjá sér og kennarar þeirra biðu spenntir á Miðgarði. Mikil gleði braust út þegar fyrstu nemendur opnuðu prófin og hófust handa við að svara. Mæting var góð og sáu námsráðgjafar til þess að hnippa í nemendur sem ekki voru mættir tímanlega í prófin. Á sama tíma var ráðherra mennta- og menningarmála, Lilja Dögg Alfreðdóttir, í heimsókn og fékk kynningu frá sálfræðingi skólans á líðan nemenda MH á tímum samkombanns. Lilja Dögg fylgdist líka spennt með nemendum streyma í Innupróf. Gangi ykkur öllum sem best í prófunum.

Prófin að byrja

Fyrsti prófdagur er mánudagurinn 4. maí. Á Miðgarði verða kennarar í aðeins öðruvísi yfirsetu en vanalega þar sem próftakar eru ekki á staðnum. Búið er að raða upp borðum fyrir kennara þannig að allir sitja saman, með hóflegt bili á milli, og fylgjast með og leiðbeina nemendum ef eitthvað kemur upp á. Prófstjóri og námsráðgjafar verða einnig tilbúin að aðstoða ef þarf. Kæru nemendur gangi ykkur sem best í prófunum.

Opnun skrifstofu og þjónusta á prófatíma

Skiptiborð skrifstofu er opið 29.-30. apríl en 4. maí verður hefðbundinn opnunartími á skrifstofunni. Bókasafnið verður opið 08:00-16:00 alla virka daga og er rými fyrir 36 nemendur í sæti en gætt er að 2m reglunni um fjarlægð milli sæta. Náms- og starfsráðgjöf og sálfræðiþjónusta er opin en panta þarf tíma í tölvupósti fyrir viðtal. Sama gildir um þá sem vilja ná tali af stjórnendum og er best að senda tölvupóst vegna óska um viðtal. Nemendur eiga að nota aðalinngang skólans (Hamrahlíðarmegin, rafmagnshurðir) sem er opinn milli 08:00-16:15.

Akademísk heilindi

Búið er að setja fram og samræma reglur sem tengjast námi nemenda í MH og eru kallaðar Akademísk heilindi. Fyrirmyndin kemur úr IB náminu og eru reglurnar komnar á heimasíðuna. Vísað verður í þessar reglur varðandi prófin núna í vor og eiga nemendur að lesa þær vel og tileinka sér. Næsta haust verða Akademísku heildindin tekin fyrir í lífsleikni nýnema til að tryggja að allir nemendur þekki þau. Undir prófreglur er hægt að lesa útdrátt úr akademísku heilindunum sem tengjast prófum og próftöku.

Próftaflan tilbúin

Próftaflan er komin á vefinn og þurfa nemendur að skoða hana vel. Kennarar munu gefa allar nánari upplýsingar þegar nær dregur og bréf hefur verið sent til allra frá prófstjóra MH um breytt fyrirkomulag þetta vorið.