Fréttir

Japanska í MH

Þessa dagana mæta nemendur í MH í kennslustundir á netinu en ekki í skólann. Nemendur í japönsku fóru á netfund í gær með nemendum frá Japan. Í pósti frá Yayoi Mizaguchi japönskukennara í MH kemur eftirfarandi fram. "Some students from Japanska BB & DD joined online conference to discuss Sustainable Development Goals today. The presenters of this conference were from Kanazawa University Senior High School, http://partner.ed.kanazawa-u.ac.jp/kfshs/. The students enjoyed it a lot and joined the discussion about Drama Education and Fair Trade." Já það eru engin landamæri þegar netfundir eru annars vegar.

Dótakassinn - Hlaðvarp í umsjón Bóasar Valdórssonar

Dótakassinn er hlaðvarpsþáttur sem Bóas Valdórsson sálfræðingur MH heldur úti. Í Dótakassanum er að finna efni sem tengist andlegri líðan en einnig heilræði sem nýtast í daglegu lífi fólks. Við viljum vekja sérstaka athygli á heilræðum á tímum kórónuveirunnar.

Inna og fjarkennsla

MH hefur fengið aðgang að fjarkennslu í Innu og eru kennarar að prófa sig áfram í að skoða það. Leiðbeiningar fyrir nemendur eru komnar inn á Innu undir aðstoð sem kannski hjálpa til við að finna fundina og taka fyrstu skrefin. Athugið að fundir sjást ekki fyrr en kennari hefur opnað fyrir það að fundur birtist, alveg sambærilegt við verkefni. Spennandi nýjung sem við munum nýta okkur. Góða skemmtun. Athugið að leiðbeiningarnar birtast einnig hér ef þið opnið fréttina.

Þýskuþraut

Hin árlega þýskuþraut framhaldsskólanna var haldin rétt fyrir samkomubann. Við í MH áttum að þessu sinni 4 verðlaunahafa en veitt eru verðlaun fyrir 15 efstu sætin. 63 nemendur úr mörgum framhaldsskólum víðsvegar um landið tóku þátt, þar af 8 nemendur í MH og hreppti MH-ingurinn Ragnhildur Björt Björnsdóttir önnur verðlaun, sem er frábær árangur. Hún fékk að launum 4 vikna dvöl sumarið 2020 í Þýskalandi á vegum þýska ríkisins með öðrum ungmennum frá öllum heimshornum. Því miður þurfti að blása ferðina af þetta árið vegna kórónuveirufaraldursins sem öllum þykir að sjálfsögðu mjög leitt. Aðrir MH-ingar í verðlaunasætum voru Páll Ísak Ægisson sem lenti í 6. sæti, Guðlaug Fríða Helgadóttir Folkmann sem lenti í 9. sæti og Vala Ástrós Bjarnadóttir sem lenti í 10. sæti. Guðlaugu Fríðu var svo í framhaldinu boðið að taka þátt í Eurocamp en það er tveggja vikna dvöl í sumar í Þýskalandi með ungmennum 18 ára og eldri og þar kemur einnig saman fólk frá mörgum löndum í boði þýskra stjórnvalda. Við vonum svo sannarlega að sú ferð verði ekki blásin af líka. Virkilega vel gert hjá okkar fólki og átti MH flesta verðlaunahafa þetta árið og hljóta þau öll bókaverðlaun. Við erum öll, sérstaklega þýskukennarar MH, Valgerður, Guðrún og Katharina, ákaflega stolt og ánægð með árangur okkar nemenda.

Þjónusta skrifstofu MH á tímum samkomubanns / Office Information

Skrifstofa skólans verður lokuð meðan samkomubann er í gildi. Hægt er að senda póst á mh@mh.is en tölvupósturinn er vaktaður alla virka daga milli 8:30-15:30. The school office will be closed while the gathering ban is in place. For assistance, you can send an email to mh@mh.is this account will be monitored from 8:30 to 15:30 weekdays.

IB og fyrirhugaðar breytingar í vor

MH býður upp á IB braut, alþjóðlega námsbraut sem rekin er af IBO (IB organization). Brautin er tvö ár og lýkur með samræmdum prófum í maí ár hvert. IB samtökin hafa aflýst IB DP lokaprófum sem voru fyrirhuguð í maí 2020 vegna COVID-19. Sjá nánar á heimasíðu IB samtakanna (slóðin er: https://www.ibo.org/news/news-about-the-ib/may-2020-examinations-will-no-longer-be-held/) og hér: https://www.mh.is/is/ib-studies/for-students/covid19. _________ The IBO has published that the May 2020 examinations will no longer be held. See further information here: https://www.mh.is/is/ib-studies/for-students/covid19 and on ibo.org.

Stjórnunarkeppni framhaldsskólanna

Stjórnunarkeppni framhaldsskólanna var haldin um daginn. Á síðu keppninnar stendur að í Stjórnunarkeppni framhaldsskólanna keppi þriggja til fjögurra manna lið í að stýra fyrirtæki í ákveðinn tíma með sem bestum árangri. Mikilvægur hluti af starfi stjórnenda er að taka ákvarðanir, bæði um atriði í starfsemi frá degi til dags og stærri ákvarðanir sem hafa áhrif á starfsemina, og samfélagið allt, til frambúðar. Blandað lið MH, MR og MS varð í fyrsta sæti og óskum við þeim til hamingju með það.

Forritunarkeppni framhaldsskólanna

Á morgun 21. mars,er Forritunarkeppni framhaldsskólanna, en hún verður núna haldin sem fjar-keppni vegna samkomubannsins, þ.e.a.s þátttakendur skrá sig inn í keppnisumhverfið heiman frá sér. MH er með eitt lið sem tekur þátt, The Bools heitir það. Þetta fyrirkomulag keppninnar mun reyna mikið á fjar-samvinnu keppenda, en vonandi hefur þátttaka í fjarkennslunni síðustu daga verið góð æfing. Þar sem allir liðsmenn eru að vinna heiman frá sér þá þurfa liðsmenn að spjalla saman í gegnum samskiptaforrit ásamt því að hafa aðgang að skjá eins liðsmanns til að geta forritað lausnina saman. Lausnin er síðan send inn á sérstakan skilavef keppninnar (Kattis) sem fer sjálfvirkt yfir lausnina og gefur liðinu stig. Öll liðin sjá stigatöflu í rauntíma og geta því fylgst með gengi síns liðs. Lokaathöfn verður streymt út á netið og byrjar klukkan 16:15. Lokaathöfnin byrjar stuttu eftir að keppni lýkur, eða klukkan 16:15, og verður hægt að fylgjast með henni á netinu hér: https://livestream.com/ru/ff2020 Áfram The Bools !!!

Microsoft Teams

Margir kennarar eru að nota fjarfundi í Teams til að hitta nemendur. Allir nemendur MH hafa aðgang að Teams og er hægt að finna leiðbeiningar í Innu eða hér á heimasíðunni. Allir þurfa að skrá sig inn með kennitölunni sinni og leyniorðið er það sama og þið notið til að fara inn á tölvurnar í MH. Ef þi hafið ekki leyniorðið þá hafið þið samband við netstjóra MH með tölvupósti í netfangið netstjori@mh.is

Svefn skiptir miklu máli

Flest vitum við að svefn skiptir miklu máli. Alþjóðlegi svefndagurinn var föstudaginn 13.mars og í tilefni af því sendi verkefnastjóri heilsueflandi framahaldsskóla út ráðleggingar sem stuðla að betri svefni og töflu sem segir til um æskilegan svefntíma fyrir hvert aldurskeið. Um þetta er einnig fjallað í frétt á vef embættisins. Við minnum á að góður svefn er nauðsynlegur fyrir alla til að geta tekist á við verkefni dagsins. Á þessum tímum er einnig vert að taka fram að góður svefn hefur jákvæð áhrif á ónæmiskerfið.