Námsbrautir

Í Menntaskólanum við Hamrahlíð er boðið upp á breiða almenna menntun á sjö bóknámsbrautum til stúdentsprófs: félagsfræðabraut, málabraut, náttúrufræðibraut, opinni braut, listdansbraut, listmenntabraut og IB-braut. Fjölnámsbraut er áttunda brautin. Nemendum býðst að stunda nám á fjölnámsbraut í fjögur ár og útskrifast með lokaskírteini um námsferil sinn frá brautinni.

Til að ljúka stúdentsprófi af bóknámsbrautum, nema IB braut og listdansbraut, þarf nemandi að ljúka 205 námseiningum. Sérstök námskrá gildir um IB-brautina, sjá nánari upplýsingar um hana hér og undir IB Studies.

Námið á hverri braut (nema listdansbraut) skiptist í: Grunn/kjarna (120 einingar) og sérgreinar og val (85 einingar). Samtals 205 einingar. Listdansbraut (215 einingar) er í samstarfi við listdansskóla (Listdansskóla Íslands, Danslistarskóla JSB og Klassíska listdansskólann) og danshlutanum lýkur með lokaprófi frá þeim skólum.

Markmiðið með skipulagi brautanna er að styrkja einkenni hverrar brautar með kröfum um dýpt á afmörkuðum sviðum, samanber þrepamarkmið námskrár framhaldsskólanna. Þau gera ráð fyrir að á stúdentsprófsbrautum skuli að hámarki 35% eininga tilheyra fyrsta þrepi og a.m.k. 17% eininga skuli vera á þriðja þrepi eða hærra. Um leið er stefnt að því að auka val og ábyrgð nemenda. Sveigjanleiki með tilliti til áhuga nemandans hefur verið aukinn og dýpt á afmörkuðum sviðum er betur tryggð en áður.

Brautirnar hafa allar breiða undirstöðu, þ.e. allir leggja stund á móðurmál, stærðfræði, þrjú erlend tungumál, sögu, raungreinar, samfélagsfræðigreinar, líkamsrækt og lífsleikni.

Ef nemandi hefur hug á að taka tvær brautir saman þarf hann að gera það í samráði við áfangastjóra. Til dæmis er ekki hægt að taka opna braut og aðra braut saman.

Nemendur þurfa að taka 3 áfanga í þriðja tungumáli á öllum brautum nema málabraut. Það tungumál sem getur verið þriðja tungumál þarf að vera kennt í MH. Þetta eru franska, þýska, ítalska og spænska.

Nemendur þurfa að taka 6 einingar í líkamsrækt á öllum brautum nema listdansbraut. Ef nemandi er skemur en 6 annir í skólanum þarf að fylla upp í einingarnar með öðrum áföngum.

Tenglar á lýsingu hverrar brautar eru í dálki hér til hægri og hér má skoða aðra uppsetningu á brautunum sem notuð er til kynningar fyrir grunnskólanemendur

Síðast uppfært: 09. febrúar 2024