Fréttir

Fyrsti kennsludagur eftir páska

Kennsla samkvæmt stundaskrá hefst aftur miðvikudaginn 30. mars.

Opnunartímar skrifstofu skólans í dymbilviku/Office hours during Easter

Mánudaginn í dymbilviku, 21. mars, verður skrifstofa skólans opin frá kl.10:00 til kl. 14:00. Eftir páska verður skrifstofan opin frá og með þriðjudeginum 29. mars á auglýstum skrifstofutíma. Kennsla hefst svo miðvikudaginn 30. mars. The office will be open between 10 am and 2 pm on Monday the 21st. After that it will be closed for Easter holiday until 9:30 on Tuesday the 29th.  Teaching will start again on Wednesday March 30th.  Gleðilega páska!

Áhugaverð fræðsla á vegum NFMH í Norðurkjallara

Mánudaginn 14. mars kl. 19:00 mun Nemendafélag Menntaskólans við Hamrahlíð bjóða nemendum í skólanum upp á fræðslu um streitu og kvíða. Steinunn Anna Sigurjónsdóttir sálfræðingur hjá Kvíðameðferðastöð og fyrrum nemandi við MH mun koma og fjalla um kvíða, einkenni hans og hagnýtar og góðar leiðir til að takast á við kvíða. Kvíði hefur aukist meðal framhaldsskólanema og er kvíði oft nefndur sem ástæða brotthvarfs úr framhaldsskóla. Það er því mikilvægt að opna umræðuna um kvíða og hvetjum við nemendur til að mæta og fræðast um kvíða og leiðir til að takast á við hann. Í Norðurkjallara  kl. 19 14. mars. Hlökkum til að sjá ykkur!

Opið hús fyrir grunnskólanema 10. mars kl. 16:30 - 18:30

Valvika 29.feb - 4. mars 2016 - Course selection for autumn term

Allir nemendur sem ætla að stunda nám í skólanum á haustönn 2016 verða að velja áfanga fyrir næstu önn. Valið er bindandi og stendur frá 29. febrúar- 6. mars.  Þess vegna ættu allir að fara að huga að valinu, fara á heimasíðu skólans undir:  upplýsingar um val – áfangar og skoða ”áfanga í boði”, ”Leiðbeiningar fyrir val”  til að glöggva sig á framgangi valsins. Prófdagar haustannar. Einnig eru á heimasíðunni sérstakar leiðbeiningar fyrir þá sem eru að velja í fyrsta skipti undir:Ábendingar um námsval eftir fyrstu önn. Leiðbeiningar um innslátt á vali eru í handbók forráðamanna á heimasíðu MH. It is high time to select courses for the autumn term 2016 Starting February 29th you can enter the courses of your choice for next term. The last day to select is Friday March 6th. Áfangaframboð /available courses for the next term are now to be seen on our homepage. Guide to course selection in IB. Nemendur verða skráðir í hóp hjá sérstökum valkennara í áfanga sem heitir VAL1001.   Þessi áfangi ásamt hópnúmeri og nafni valkennara, birtist með rauðu letri fyrir ofan stundatöfluna ykkar í Innu.  Þessi tiltekni valkennari verður ykkur innan handar við að velja ásamt því að sjá til þess að þið ljúkið að velja á réttum tíma.  Sláið sjálf inn valið ykkar.  Þegar þið hafið slegið inn valið sendið þá póst til valkennarans og skrifið bæði nafn og kennitölu þannig að valkennarinn viti hverjir hafi lokið við að slá inn valið. Auk þess verða námstjórar og áfangastjóri til viðtals fyrir alla nemendur um valið.

Arvo Pärt, Hamrahlíðarkórarnir og Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hamrahlíðarkórarnir syngja verk eftir Arvo Pärt með Sinfóníuhljómsveit Íslands fimmtudaginn 3. mars. Eistneska tónskáldið Arvo Pärt hefur heillað heimsbyggðina með einstökum og undirfögrum tónsmíðum. Á tónleikunum heyrast tvö verka hans Cantus in memoriam Benjamin Britten og Te Deum sem tónskáldið segist hafa á varnfærnislegan hátt dregið út úr þögninni og tóminu.