Upplýsingar um lokapróf á Duggu

Nokkur lokapróf verða haldin í námsumhverfinu Duggu. Mælt er með því að nemendur fari inn á Duggu með MICROSOFT OFFICE aðganginum sínum. Hann er tengdur við @mh.is netföngin þeirra og þurfa nemendur að vera búin að virkja aðgang sinn að Office pakkanum fyrir lokapróf, sjá hér: Microsoft 365 | Menntaskólinn við Hamrahlíð.
 
Æskilegt er að nemendur komi með eigin tölvu í prófið, en þau sem eiga þess ekki kost geta fengið tölvu lánaða frá skólanum og sækja um það hér fyrir síðasta kennsludag: Vorönn 2026 - Lán á tölvu í lokaprófi / Borrowing a computer for the final exam – Fill out form. Athugið að lánstölvur eru ætlaðar þeim sem virkilega þurfa á þeim að halda þar sem tölvukostur skólans er takmarkaður.
 
Nemendur þurfa að ganga úr skugga um að þau séu búin að hlaða niður Respondus LockDown vafra á tölvuna sína, og full hlaða hana áður en komið er í próf. Niðurhal hér: Security | Dugga. Ekki nægir að hafa bara tölvuna með, heldur verða þau líka að muna eftir að taka með sér persónuskilríki með mynd, síma og skriffæri. Það þarf t.d. alltaf að fylla út viðverumiða í prófi svo skriffæri eru nauðsynleg.
 
Um síma í dugguprófum gilda sérstakar reglur. Nemendur geta lent í því að þurfa að auðkenna sig þegar þau skrá sig inn á Duggu og því er nauðsynlegt að þau hafi síma meðferðis. Þegar auðkenningu er lokið verður að slökkva algerlega á símanum og setja hann á gólfið undir stólnum, með skjáinn niður. Nemandi sem tekur símann upp áður en að prófi er lokið, telst hafa brotið prófreglur. Það sama gildir um nemanda sem slekkur ekki á símanum.
 
Hér eru leiðbeiningar fyrir nemendur sem taka lokapróf á Duggu:
Síðast uppfært: 29. apríl 2026