Fréttir

MH sigraði MR í átta liða úrslitum Gettu betur

Vel gert Birgitta Björg, Guðmundur og Gunnar.

MH sigraði í ræðukeppni English Speaking Union

Okkur er ánægja að tilkynna að sigurvegari í ræðukeppni English Speaking Union á Íslandi þetta árið er Melkorka Gunborg Briansdóttir, nemandi við Menntaskólann við Hamrahlíð. Aðrir keppendur úr MH voru Jasmín Kristjánsdóttir, Marín Rós Eyjólfsdóttir, Nökkvi Kristjánsson, and Þórhildur Elísabet Þórsdóttir. Nemendur okkar stóðu sig mjög vel í keppninni í ár, en þrír komust í lokaúrslit. Við óskum þeim öllum til hamingju með þennan góða árangur og Melkorku allra heilla í alþjóðlegu kepninni sem fram fer í London í maí. Til hamingju Melkorka og vel gert Þórhildur og Marín. We are proud to announce that the winner of the 2017 ESU National Public Speaking Competition is our MH student Melkorka Gunborg Briansdóttir. Congratulations to Jasmín Kristjánsdóttir, Marín Rós Eyjólfsdóttir, Nökkvi Kristjánsson, and Þórhildur Elísabet Þórsdóttir for their hard work and exemplary performance. This was an excellent year for MH as three of our students made it to the finals. We wish Melkorka the best of luck at the International Competition which is to be held in London in May. Nánari upplýsingar um keppnina má finna hér:More detailed information about the competition here:https://www.esuiceland.com/

MH sigraði í framkvæmdakeppni framhaldsskólanna, Boxinu

Bara svona af því við erum á mikilli ferð þessa dagana má minna á sigur MH í Boxinu fyrir áramót en þátturinn um keppnina var sýndur í sjónvarpinu í gærkvöldi. Í sig­urliði MH-inga voru þau Magda­lena Guðrún Bryn­dís­ar­dótt­ir, Jes­sý Jóns­dótt­ir, Ásmund­ur Jó­hanns­son, Unn­ar Ingi Sæ­mund­ar­son og Ívar Dór Orra­son. Auk aðal verðlaunanna fékk lið MH tvenn önnur verðlaun. Guðný Guðmundsdóttir eðlisfræðikennari var umsjónarmaður liðsins hér í MH. Vel gert öll sömul!Vinningsliðið ásamt Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni SI og Ara Kristni Jónssyni, rektor HR. Mynd og frétt af ru.is

Fannfergi á bílastæðum MH

Mikil jafnfallin fönn er á bílastæðum skólans og nú liggur fyrir að ekki næst að ryðja stæðin í tæka tíð fyrir skóla á morgun mánudaginn 27. febrúar.Bílastæðin eru algerlega ófær nema stærstu jeppum og eru hlutaðeigandi því beðin um að haga ferðum sínum til skólans á morgun með tilliti til þessara aðstæðna, þ.e. að ekki er unnt að leggja bifreiðum við skólann. Þrátt fyrir þetta er veðurspá hagstæð og stefnt að eðlilegu skólahaldi.

Lagningardagar/Open days 22. - 24. febrúar

Lagningardagar verða hér í MH 22., 23. og 24. febrúar. Þá fellur niður hefðbundin kennsla og ýmsir skemmtilegir viðburðir verða, s.s. fyrirlestrar, námskeið og skapandi starf. Dagskrá/timetable  Facebook Open days on February 22nd, 23rd and 24th with lectures, workshops, music, dance, drawing, drama and more. Attendance is mandatory during these days. Mætingarskylda er á þessum dögum. Búinn hefur verið til nýr áfangi, LAGN1AF00... A new course LAGN1AF00 will be added to every student’s curriculum and timetable...

Miðvikudaginn 15. febrúar verður skólinn lokaður vegna útfarar Örnólfs Thorlaciusar fyrrverandi rektors MH

Menntaskólinn við Hamrahlíð var starfsvettvangur Örnólfs í nær þrjá áratugi. Hann var ráðinn að skólanum á öðru starfsári hans, haustið 1967, og varð þar með fyrsti kennari náttúrufræða í MH og sjálfkjörinn forystumaður skólans á því sviði. Örnólfur tók við embætti rektors sumarið 1980 og gegndi því til ársloka 1995. Í skólanum er hans minnst sem rektors, kennara, rithöfundar og fræðaþular. Hann var  nemendum og samferðafólki eftirminnilegur sem afbragðskennari og viskubrunnur á sviði náttúrufræði og fjölmargra annarra áhugamála. Af hálfu skólans er að leiðarlokum þakkað fyrir allt það góða sem Örnólfur fékk áorkað. Hann auðgaði skólann og þá sem fengu að starfa við hlið hans.

Opið hús fyrir grunnskólanema 23. mars kl. 17:00 - 18:30

Fésbókarsíða MH

Vakin er athygli á fésbókarsíðu skólans en þar er að finna ýmsan fróðleik og upplýsingar.Gott getur verið að fylgjast með þessari síðu.

Nemendur MH taka þátt í Háskólahermi HÍ 2. og 3. febrúar

Í dag og á morgun taka 130 nemendur skólans þátt í Háskólahermi HÍ. Myndbandið hér fyrir neðan gefur smá innsýn í viðfangsefni þeirra þessa tvo daga.  Við vonum að þau hafi bæði gagn og gaman af.