Fréttir

Á slóðum Njálu

Fimmtudaginn 30. mars verða um 140 nemendur og 4 kennarar í ÍSLE3CC05 á ferð um slóðir Njálu.  

MH sigraði í undanúrslitum Gettu betur

MH nemendur standa sig vel í landskeppninni í efnafræði

Sextánda almenna landskeppnin í efnafræði fór fram í framhaldskólum landsins miðvikudaginn 1. mars. Alls tóku 123 nemendur þátt, úr 9 skólum. Sigurvegari 16. Almennu landskeppninnar er Sigurður Guðni Gunnarsson, nemandi við Menntaskólann við Hamrahlíð, en hann hlaut 82,5 stig af 100 mögulegum.  Meðalstigafjöldi keppenda var 36,5 stig. 14 efstu keppendum er boðið að taka þátt í úrslitakeppni sem haldin verður við Háskóla Íslands helgina 25.-26. mars næstkomandi. Þar verða fimm fulltrúar MH þau Sigurður Guðni Gunnarsson, Alec Elías Sigurðarson, Guðrún Diljá Ketilsdóttir, Emil Agnar Sumarliðason og Guðrún Þorkelsdóttir. Vel gert öll sömul!

Opið hús fyrir grunnskólanema 23. mars kl. 17:00 - 18:30

Forinnritun 10. - bekkinga fyrir haustið 2017 er frá 6. mars til 10. aprílInnritunin fer fram á Menntagátt. Hér eru tenglar í upplýsingar um námsbrautir, inntökuskilyrði og úrvinnslu og viðmiðunarreglur MH. Með góðu skipulagi og dugnaði geta nemendur lokið náminu á 3 árum!

Ýmislegt forvitnilegt um MH á fésbókarsíðu skólans

Grunnskólanemendur eru hvattir til þess að mæta á opna húsið 23. mars en það verður frá kl. 17:00 til 18:30 hér í MH.

Vali fyrir haustið lýkur um helgina/Course selection ends during the weekend

Allir nemendur sem ætla að stunda nám í skólanum á haustönn 2017 verða að velja áfanga fyrir næstu önn. Valið er bindandi og stendur frá 6.-10 mars.  Þess vegna ættu allir að fara að huga að valinu, fara á heimasíðu skólans undir:  upplýsingar um val – áfangar og ”leiðbeiningar fyrir val”  til að glöggva sig á framgangi valsins. Einnig eru á heimasíðunni sérstakar leiðbeiningar fyrir þá sem eru að velja í fyrsta skipti undir: Ábendingar um námsval eftir fyrstu önn. Hér er svo tengill í próftöflur næsta vetrar. Áfangar í boði á haustönn 2017 og  hér eru leiðbeiningar um innslátt á vali. It is high time to select courses for the autmn term 2017 Starting March 6th you can enter the courses of your choice for next term. The last day to select is Friday March 10th.  Áfangaframboð /available courses for the next term.  Guide to course selection in IB. Nemendur verða skráðir í hóp hjá sérstökum valkennara í P-áfanga sem heitir VAL1001.  Þessi áfangi ásamt hópnúmeri og nafni valkennara, birtist með rauðu letri fyrir ofan stundatöfluna ykkar í Innu.  Þessi tiltekni valkennari verður ykkur innan handar við að velja ásamt því að sjá til þess að þið ljúkið að velja á réttum tíma.  Sláið sjálf inn valið ykkar.  Þegar þið hafið slegið inn valið sendið þá póst til valkennarans og skrifið bæði nafn og kennitölu þannig að valkennarinn viti hverjir hafi lokið við að slá inn valið. Auk þess verða námstjórar, náms- og starfsráðgjafar og áfangastjóri til viðtals fyrir alla nemendur um valið.

Hinseginvika NFMH

Um sálfræðiþjónustu og álag hjá menntaskólanemum

Í er­indi Bóas­ar Val­dórs­son­ar, sál­fræðings við Mennta­skól­ann í Hamra­hlíð, á fundi sam­tak­anna Náum átt­um um ein­mana­leika og sjálf­skaðandi hegðun ungs fólks kom m.a. fram að nem­end­ur í fram­halds­skóla eru dug­leg­ir við að nýta sér sál­fræðiþjón­ustu sem er í boði inn­an skól­ans. Þeir eru al­mennt opn­ir með að tjá sig um vanda­mál­in sem þeir standa frammi fyr­ir og gera kröfu um að vera ham­ingju­sam­ir. Hins veg­ar eru þeir und­ir miklu álagi og áreitið er mikið. Ítarlegri frásögn má lesa í þessari frétt á mbl.is.

Íslandsmeistari karla í kata nemandi MH

Íslandsmótið í kata í karate fór fram í íþróttahúsi Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Nýr Íslandsmeistari var krýndur í karlaflokki á Íslandsmeistaramóti fullorðinna í kata en það er MH-ingurinn Aron Anh Ky Huynh úr ÍR. Vel gert Aron!