Fréttir

Stöðupróf - Placement tests 13.09.2012

Skráningu í stöðupróf 13. september er lokið. Stöðupróf í albönsku, bosnísku, eistnesku, filipísku, finnsku, grísku, hollensku, japönsku, kínversku, króatísku, litháísku, portúgölsku, pólsku, rússnesku, serbnesku, slóvensku, taílensku, tékknesku, tyrknesku, Twi, ungversku, úkraínsku og víetnömsku verða öll haldin 13.september 2012 kl. 16:00. Registration for Placement tests has finished. Placement tests in Albanian, Bosnian, Chinese, Croatian, Czech, Dutch, Estonian, Filipino, Finnish, Greek, Hungarian, Japanese, Lithuanian, Portugese, Polish, Russian, Serbian, Slovenian, Thai, Turkish, Twi, Ukranian and Vietnamese will all be held on  September 13th  2012  at  4 pm.

Leyfisbréf fyrir nýnemaferð

Hér má nálgast leyfisbréf fyrir busaferð um þessa helgi.

Nemendur athugið breytt nöfn áfanga

Vegna breytinga á námskrá eru ný áfangaheiti á fyrstu áföngum í sumum greinum. Nemandi sem t.d. valdi ÍSL1036 er nú skráður í ÍSLE2LR05 og eru þessir áfangar jafngildir og með jafn margar einingar þ.e. 3. Hér er listi yfir áfanga sem fengið hafa ný heiti.

Viðbótaráfangi í stundatöflu - lokið

Ef þú hefur lokið a.m.k. 17 einingum á síðustu önn og verið með 9 eða 10 í mætingu getur þú e.t.v. fengið viðbótaráfanga í töfluna þína. Umsóknareyðublað og yfirlit yfir lausa áfanga er við st. 34 (undir skjánum).

Innritun í Öldungadeildina/kvöldskólann stendur yfir

Innritun í öldungadeildina stendur yfir. Smellið hér til að innrita ykkur. Kennsla fyrri lotu hefst skv. stundaskrá miðvikudaginn 22. ágúst.

Skrifstofa opnuð að loknum sumarleyfum

Að loknu sumarleyfi var skrifstofan opnuð kl. 10:00 mánudaginn 13. ágúst . Aðgangi allra nemenda að Innu hefur verið lokað. Stundatöflur þeirra nemenda sem greitt hafa skólagjöldin verða aðgengilegar upp úr miðjum ágúst. Nánari upplýsingar verða hér á heimasíðunni þegar nær dregur. Stöðupróf verða haldin 16. til 20. ágúst og er skráning hafin. Kennarafundur verður kl. 10:00 þriðjudaginn 21. ágúst. Nýnemar eiga að mæta á fund rektors á Miklagarði, hátíðarsal skólans, þriðjudaginn 21. ágúst kl. 13:00 stundvíslega. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 22. ágúst