29.11.2013
Stúdentsefni kveðja skólann með skemmtun á sal kl. 11:10 - 12.10.
Kennsla fellur niður á þeim tíma.
Gangi ykkur vel í próflestri dimitantar!
21.11.2013
Örnámskeið um skipulag, prófundirbúning og prófkvíða verða í st. 41 kl. 12:15 - 12:35 þriðjudaginn 19. nóv.,
miðvikudaginn 20. nóv. og fimmtudaginn 21. nóv.
Exam preparation with School Counselor, wed. 20/11 13:50-14:25 in room 41
Náms- og starfsráðgjafar benda einnig nemendum á prófkvíðakönnun á heimasíðu sálfræðinga
á http://www.persona.is/.
20.11.2013
Lið MH tók þátt í framkvæmdakeppninni boxinu i HR laugardaginn 9.nóvember. Liðið þótti standa sig mjög vel. Þau fengu
sérstaka viðurkenningu fyrir lausn sína á þrautum Marorku og TM software. Í umsögn Marorku kom t.d. fram að lausn liðsins hefði farið fram
úr öllum væntingum þeirra sem bjuggu þrautina til. Liðið skipuðu Eydís Blöndal, Gabríel Darri Mikaelsson, Guðni Fannar
Kristjánsson, Sölvi Rögnvaldsson og Tryggvi Þór Pétursson. Ríkissjónvarpið var á staðnum og þáttur um keppnina
verður sýndur í ríkissjónvarpinu þegar fram líða stundir.
19.11.2013
Leiktu betur spunakeppni framhaldsskólanna var haldin sl. föstudagskvöld. Keppnin var haldin Tjarnarbíói og er hluti af Unglist sem haldin var í
síðustu viku á vegum Hins Hússins og Reykjavíkurborgar. Vel var mætt á keppnina og þurftu margir frá að hverfa vegna húsfyllis.
Leiktu betur er keppni í Lekhússporti sem er spuni þar sem fjögurra manna lið keppa í því að búa til óundirbúna spuna.
Sex skólar sendu lið til keppninnar og var keppnin allhörð.
Lið MH fór með sigur úr bítum í keppninni, sigraði með yfirburðum. Í liðinu voru: Vilhelm Þór Netó, Tómas
Gauti Jóhannsson, Tryggvi Björnsson og Hákon Jóhannesson.
15.11.2013
Á málræktarþingi íslenskrar málnefndar sem haldið var í Þjóðmenningarhúsinu í gær var sérstaklega
fjallað um íslensku sem annað mál og börn með erlendan bakgrunn í íslensku skólakerfi. Þar afhenti Guðrún Kvaran, formaður
íslendrar málnefndar, þremur einstaklingum viðurkenningu fyrir árangursríkt starf á þessu sviði. Meðal þeirra var Valgerður
Garðarsdóttir sem tók við viðurkenningu vegna starfs hennar, Þóreyjar Torfadóttur og annarra hér á bæ í þágu
umrædds nemendahóps, ekki síst vegna þeirrar séraðstoðar utan kennslustunda sem viðkomandi nemendum gefst kostur á. Frétt mbl.is
11.11.2013
Nemendur athugið.
Próftafla ykkar er nú aðgengileg á Innu.
Nemendur mega sækja um
að hliðra próftöflu sinni ef:
Tvö próf eru á sama tíma
Þrjú próf eru á sama degi
Ef tvö löng próf, lengri en ein klukkustund hvort próf, eru á sama degi.
Ekki er leyft að breyta
próftöflu vegna ferðalaga!
Nemendur sem uppfylla ofangreind skilyrði geta sent Guðmundi Arnlaugssyni prófstjóra (profstjori@mh.is) tölvupóst fyrir föstudaginn 8. nóvember.
Próftafla í desember 2013
08.11.2013
Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti
"Við undirrituð skuldbindum okkur til þess að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar. Við munum standa vörð um rétt
fólks til þess að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt. Við munum sérstaklega gæta réttar barna og ungmenna sem og einnig allra
hópa sem ekki eiga sér málsvara eða sterka rödd.
Við munum öll hvert á okkar sviði, skuldbinda okkur til þess að hafa áhrif til góðs á nánasta umhverfi okkar. Við ætlum að
vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til þess að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er".
Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti undirritaður
af samstarfsaðilum
Sýndu í verki að þú sért á móti einelti og skrifaðu undir þjóðarsáttmálann
Í Menntaskólanum við Hamrahlíð er einelti ekki liðið. Ef grunur vaknar um einelti meðal nemenda eða starfsmanna skal
strax tekið á málum.
Hér má lesa hver er stefna og viðbragðsáætlun MH gegn einelti
Stefna og viðbragsáætlun MH gegn einelti