Lagningardagar
01.02.2026
Lagningardagar eru þemadagar Menntaskólans við Hamrahlíð. Þemadagarnir verða 10. og 11. febrúar, þar sem nemendur, kennarar og utanaðkomandi aðilar verða með allskonar viðburði. Nemendur fá stimpla fyrir mætingu á viðburði sem samsvarar mætingu í skólann. Samtals þarf að safna 10 stimplum yfir báða dagana. Lagningardagar eru skipulagðir af Lagningardagaráðinu. Tilgangur Lagningardaga er að leyfa nemendum að læra um frjálst efni af eigin vali og á meðan þemadagar standa yfir er hefðbundin kennsla lögð niður. Í tilefni þess að skólinn verður 60 ára á þessu ári verður afmælisþema.