Fréttir

Innritun fyrir vorönn 2020

Opið er fyrir umsóknir um nám á vorönn 2020 frá 1.-30. nóvember. Tekið er á móti umsóknum inn á eftirfarandi námsbrautir: Félagsfræðabraut, opin braut, náttúrufræðibraut, málabraut, listdansbraut og tónlistarbraut. Sækja þarf um í gegnum menntagatt.is

Próftafla nemenda / Examination timetable

Nemendur athugið. Próftafla ykkar er nú aðgengileg í Innu og þið getið sótt um að hliðra próftöflunni ykkar á heimasíðu skólans ef ákveðin skilyrði eru uppfyllt.

Skólinn lokaður 24. og 25. október

Fimmtudaginn 24. er námsmatsdagur og föstudaginn 25. október er haustfrí. Nemendur fá frí frá kennslu báða þessa daga. Skólinn er lokaður báða þessa daga. Mánudaginn 28. október hefst kennsla aftur samkvæmt stundaskrá. Hafið það gott í haustfríinu! An Autumn break will be taken by students on Thursday the 24th and Friday the 25th of October. The school will also be closed. Teaching will resume at the usual time on Monday the 28th. Enjoy the Autumn break!

Grauturinn góði

Hafragrauturinn er kominn til baka eftir Októberlotuna. Hafragrautur er spónamatur og grautartegund. Hann er eldaður með því að sjóða saman valsaða hafra og vatn og oftast er salti bætt við til að auka bragð. Meira má lesa um hafragraut á Wikipedia.

Rúv núll - að ferðast inn í framtíðina

Í dag kemur Snærós Sindradóttir og tala við okkur um það hvernig ungt fólk neytir menningar og afþreyingarefnis og hvernig fjölmiðlar gætu farið að því að tortíma sjálfum sér. Áhugavert og gaman að komast að því.

Nýsköpunarlandið Ísland

Viðburður dagsins kemur frá Helgu Valfells, framkvæmdastjóra Crowberry Capital. Hún mun varpa upp spurningunni: "Hvernig búum við til alþjóðleg tæknifyrirtæki frá Íslandi". Endilega kíkið við á Miklagarði og takið þátt í framtíðinni með okkur. En á tækniöld getur allt gerst. Fyrirlesarinn var að koma frá útlöndum í gær en síminn hélt sig áfram við annað tímabelti. Það varð til þess að viðburður dagsins féll því miður niður og þykir fyrirlesaranum það mjög leitt og biðst innilegrar afsökunar á því. Kannski getum við sagt að þarna minnti tæknin á sig og hvers hún er megnug.

Bollakökur

Otkóberlotan er í fullum gangi og viðburður dagsins var í höndum handritshöfundanna Birkis Blæs og Jónasar Margeirs þar sem þeir leiddu okkur í sannleikann um það hvernig ein setning verður að sjónvarpsþætti. Meðan sumir framleiða sjónvarpsþætti eru aðrir að baka og nemendur í hússtjórn fengu að spreyta sig á bollakökugerð þar sem hugmyndaflugið fékk að njóta sín í skreytingum með kremi og sykurmassa. Hver veit nema einhvern tímann verði gerð sjónvarpsþáttaröð um bollakökugerð í MH.

Viðburðir á sal

Annar dagur í Októberlotu er runninn upp. Fyrsti tíminn byrjar 8:30 skv. stundaskrá þriðjudags kl. 8:10 og tíminn eftir hádegi byrjar 12:40, skv. stundaskrá þriðjudags kl. 14:15. Klukkan 8:10 hófst stærðfræðikeppni framhaldsskólanna á sal, þar sem ca. 20 nemendur spreyta sig og klukkan 11:15 kemur Kári Hólmar Ragnarsson lögfræðingur og verður með fyrirlestur um hvort að ár þurfi stjórnarskrárbundin réttindi.

Októberlota

Fyrsti dagur í Októberlotu fer af stað með göngu frá MH kl. 9:00 undir stjórn íþróttakennara skólans. Kl. 12:40 hefst fyrsta kennslustund dagsins og þá er kennt skv. stundatöflu mánudags, langi tíminn sem ætti að hefjast kl. 14:15 en hefst í dag kl. 12:40. Ef einhver er í vafa um það hvert hann á að fara þá ættu allar upplýsingar að vera á Innu og svo er einnig hægt að kíkja við á skrifstofunni og fá aðstoð.

Bleikur dagur í MH

Á heimasíðu átaksins fyrir bleikan október stendur: "Bleiki dagurinn hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár í bleikum október. Þennan dag hvetjum við landsmenn til að bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu." Í dag er bleikur dagur í MH