Stjórn NFMH
01.05.2026
Á hverju vori eru kosningar til stjórnar NFMH og ýmissa ráða sem halda utanum félagslíf hvers vetrar. Við þökkum gömlu stjórninni kærlega fyrir samstarfið og óskum þeim öllum góðs gengis í framtíðinni. Að vera í kjarnastjórn NFMH er mikil ábyrgð og þau stóðu sig mjög vel. Búið er að kjósa nýja kjarnastjórn fyrir veturinn 2026 - 2027 og tekur Halldór Gauti Freysson við keflinu af Daníel Þresti Pálssyni sem forseti NFMH. Við óskum nýju stjórninni til hamingju og hlökkum til samstarfsins í vetur.