Fréttir

Dimissjón

Útskriftarefni kveðja skólann með skemmtun á sal frá 11:35 til 12:35.

Próftafla og umsóknir nemenda um breytingar

Nemendur athugið. Próftafla ykkar er nú aðgengileg á Innu.Nemendur mega sækja um að hliðra próftöflu sinni ef: Tvö próf eru á sama tíma Þrjú próf eru á sama degi Ef tvö löng próf, lengri en ein klukkustund hvort próf, eru á sama degi. Ekki er leyft að breyta próftöflu vegna ferðalaga! Nemendur sem uppfylla ofangreind skilyrði geta sent Guðmundi Arnlaugssyni prófstjóra (profstjori@mh.is) tölvupóst fyrir þriðjudaginn 12. apríl. Spænskupróf - Nemendur í spænsku 1AA, 1BB og 1CC athugið. Af óviðráðanlegum orsökum verður lokaprófið í spænsku haldið 11. maí kl. 11. Þeim nemendum sem vilja frekar taka prófið á áður auglýstum degi, 17. maí kl. 11, býðst að gera það. Vinsamlegast látið spænskukennara vita ef þið kjósið þann möguleika.

HAMRAHLÍÐARKÓRARNIR KALLA Á VORIÐ

Kórarnir í Hamrahlíð, Hamrahlíðarkórinn og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð, kalla á vorið með tvennum tónleikum í hátíðarsal skólans á sumardaginn fyrsta.Þetta er hið árlega VORVÍTAMÍN kóranna, hátíð fyrir alla fjölskylduna með söng,hljóðfæraleik og ýmsum skemmtiatriðum og uppákomum. Það verður líf og fjörallan daginn, leikhorn fyrir börn, vísindastofa, hljóðfærastofa og kaffiveitingar. Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 14 og síðari kl. 16 og eru þeir með ólíkum efnisskrám.Kórarnir hafa valið mörg lög á efnisskrá sem gestir verða hvattir til að taka undirog fagna sumarkomu. Aðgangur er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir. Kór MH er nýkominn úr tónleikaferð um Norður- og Norðausturland en þar hélt hann 5 tónleika m. a. í tónlistarhúsinu Laugarborg í Eyjafjarðarsveit, Þórshafnarkirkju, Félagsheimilinu Miklagarði á Vopnafirði auk skólatónleika fyrir alla nemendur í Langanesbyggð og á Vopnafirði. Þá hafa Hamrahlíðarkórarnir nýlega lokið við upptöku með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónverki Daníels Bjarnasonar "The Isle is Full of Noises".

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð verður á tónleikaferðalagi um Norður- og Norðausturland dagana 8. - 11. apríl nk.

Föstudagskvöldið 8. apríl  heldur kórinn tónleika í tónlistarhúsinu Laugarborg í Eyjafjarðarsveit kl. 20:30. Laugardagskvöldið 9. apríl heldur kórinn tónleika í Þórshafnarkirkju kl. 20:30.        Sunnudaginn 10. apríl syngur kórinn við messu í Skeggjastaðakirkju í Bakkafirði kl. 13 og heldur tónleika í Félagsheimilinu Miklagarði á Vopnafirði kl. 17. Mánudaginn 11. apríl heldur kórinn tvenna skólatónleika, þá fyrri fyrir nemendur í Vopnafjarðarskóla kl.9:30og síðan fyrir Grunnskólana á Þórshöfn og Bakkafirði kl. 13. Aðgangur er ókeypis á alla tónleikana. Á efnisskrá kórsins í tónleikaferðinni eru íslensk og erlend tónverk m. a. eftir J. S. Bach, Carl Orff, Ariel Ramirez, Emil Thoroddsen, Jón Þórarinsson, Jón Nordal, Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson og Huga Guðmundsson auk þjóðlaga frá ýmsum löndum. Efnisskráin er svo fjölbreytt að kórinn flytur ólík verk eftir því hvort um er að ræða t. d. kirkjutónleika eða skólatónleika. Margir hljóðfæraleikarar eru meðal kórfélaga. Á þessari vorönn er Kór Menntaskólans við Hamrahlíð skipaður 85 nemendum á aldrinum 16 - 20 ára. Stjórnandi kórsins er Þorgerður Ingólfsdóttir. Fararstjórar í ferðinni eru rektor Menntaskólans við Hamrahlíð,  Lárus H. Bjarnason og Orri Páll Jóhannsson fulltrúi Reykjavíkurborgar í skólanefnd MH. Þetta er í fyrsta sinn sem Kór MH heimsækir Langanesbyggð og Vopnafjörð.

Fyrirlestur á vegum foreldrafélaga MH og Kvennó um álag, streitu og kvíða hjá framhaldsskólanemum 6. apríl kl. 20 í MH

Anna G. Steinsen, tómstunda-og félagsmálafræðingur, heilsumarkþjálfi og jógakennari, fjallar um álag, streitu og kvíða framhaldsskólanema og hvernig hægt er að sporna gegn því að þessi líðan verði viðvarandi. Unglingarnir okkar þurfa að takast á við mikinn hraða og áreiti. Það dynja á þeim allskyns skilaboð úr öllum áttum um hvernig þeir eiga að vera, hvað þeir eiga að gera og hvernig þeir eiga að haga sér. Kvíði og streita er ekki eitthvað sem við viljum að unga fólkið okkar fari með út í lífið og því spurning hvað við getum gert sem foreldrar. Við hvetjum alla foreldra til að koma og hlusta á áhugaverðan fyrirlestur miðvikudaginn 6. apríl kl. 20:00 í st. 11 í MH. Foreldraráð MH