Tölvur og hlaðvarpsbúnaður

Á bókasafninu má finna borðtölvur og fartölvur.

Fartölvurnar eru geymdar í afgreiðslu safnsins og lánaðar í tímalán innan skólans.

Þeir nemendur sem vinna að verkefnum tengdum námi við skólann ganga fyrir að fá tölvur. 

Á bókasafninu má finna hlaðvarpsstúdíó á hjólum sem lánað er nemendum og starfsfólki. Hlaðvarpsstúdíóið getur tekið upp á fjórum rásum, þar sem hver rás hefur sinn hljóðnema og heyrnartól.

Síðast uppfært: 07. janúar 2026