Fréttir

Um stundatöflur

Nemendur athugið að til þess að sjá heila viku af stundatöflu þarf að skoða næstu viku.

Skrifstofa um hátíðar - Office hours during the holidays

Skrifstofa skólans verður lokuð vegna jólaleyfa frá og með 22. desember til 2. janúar 2017. Þriðjudaginn 3. janúar verður skrifstofan opnuð á hefðbundnum tíma kl. 8:30. Fyrsti kennsludagur vorannar 2017 verður fimmtudaginn 5. janúar. Upplýsingar munu koma á heimasíðu milli jóla og nýárs. Hafið það gott um hátíðarnar! The office will be closed for the holidays from December 22nd to January 2nd 2017. On Tuesday January 3rd the office will be open as usual from 8:30. Teaching will start on January 5th. Look here on the homepage for information regarding timetables later during the holidays.Happy Holidays!

Brautskráning stúdenta

Útskrifað verður þriðjudaginn 20. desember. Athöfnin fer fram á Miklagarði hátíðarsal skólans og hefst kl. 14:00 með áætluðum lokum um kl. 16:00.Útskriftaræfing verður mánudaginn 19. desember kl. 18. Áríðandi að öll útskriftarefni mæti stundvíslega.Graduation ceremony will be held on Tuesday December 20th. The ceremony takes place in Mikligarður the school auditorium starting at 2 pm and expected to end around 4 pm.Graduation rehersal will be at 6 pm on Monday the 19th. It is important that all the graduating students attend on time.

Dagskrá staðfestingardags 16. desember

Hér eru nánari leiðbeiningar fyrir staðfestingu vals og hvernig það er gert í Innu, hér er listi yfir áfanga í boði á vorönn og listi yfir áfanga sem falla niður. Dagskrá staðfestingardags föstudagsins 16. desember: Viðtalstímar valkennara dagskóla verða frá 10:00 - 11:00 Prófasýning verður frá 11:15 - 12:15. Nemendur eru hvattir til þess að nýta sér þetta tækifæri til þess að skoða prófin því eftir þennan tíma fara prófin í geymslu. Staðfestingu og nauðsynlegri lagfæringu á vali dagskólanema þarf að vera lokið kl. 14:00 og skila þarf inn P-umsóknum fyrir kl. 11:30. Athugið að ekki verður hægt að sækja um P-áfanga í janúar. Timetable on course selection day Friday Dec. 16th: Teachers assisting with course selection will be available from 10:00 - 11:00. Viewing of test papers is possible from 11:15 - 12:15. Students are encouraged to use this opportunity to view the test papers. Confirmation or adjustment of the course selection for spring term has to be finished by 2 o´clock.

Prófatímabilið 1. til 13. desember 2016

Próf hefjast fimmtudaginn 1. desember og standa til þriðjudagsins 13. des. Veikindi á prófdegi verður að tilkynna skrifstofu skólans (S: 5955200) fyrir kl. 14:00 samdægurs. Þá fær nemandinn upplýsingar um sjúkrapróf. Nemandinn mætir í sjúkrapróf á tilsettum tíma og skilar þar læknisvottorði fyrir veikindadaginn.     Skrifstofa er opin alla virka daga kl. 8:30 - 15:30.Bókasafnið er opið alla virka daga kl. 8 - 18 og laugardaginn 3. desember kl. 10 – 14. Prófstjóri er með viðtalstíma alla prófdaga kl. 10 - 11 í st. 38. Gangi ykkur vel í prófunum! Final exams start on December 1st and end on December 13th. Students that fall sick during the finals phone the office (Tf. 5955200) before 2 pm on the exam day at which time they will receive  information regarding makeup exams. Students need to hand in a doctor’s note  at the start of makeup exams.   The School office is open from 8:30 am - 3:30 pm Monday – Friday. The Library is open Monday – Friday from 8 am - 6 pm and Saturday  December 3rd from 10 am - 2 pm. The administrator in charge of exams can be found in room 38 from 10 – 11 on the mornings of test days. Good luck with your exams!

Stofnfundur Nemenda- og hollvinasamtaka Menntaskólans við Hamrahlíð

Stofnfundur Nemenda- og hollvinasamtaka Menntaskólans við Hamrahlíð verður haldinn fimmtudaginn 1. desember 2016 milli 18.00-19.00 í stofu 11, Menntaskólanum við Hamrahlíð. Til stofnfundarins eru boðaðir allir væntanlegir félagsmenn, sem eru allir útskrifaðir nemendur frá MH sem og fyrrverandi og núverandi starfsmenn skólans.

Hamrahlíðarkórarnir syngja með Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hamrahlíðarkórarnir syngja með Sinfóníuhljómsveit Íslands á aðventutónleikum í kvöld 1. des. kl. 19:30.á heimasíðu Hörpu segir m.a.:„Á aðventutónleikum Sinfóníunnar hljómar hátíðleg tónlist eftir þrjá meistara 18. aldar: Bach, Händel og Mozart. Tvö hrífandi verk eftir Mozart ramma inn efnisskrána, fjörmikill forleikur að Brúðkaupi Fígarós og sinfónía nr. 39 sem var ein sú síðasta sem hann samdi. Glæsilegt kórverk Händels var samið til flutnings við krýningu Karólínu Bretadrottningar í Westminster Abbey árið 1727 og hefur engu glatað af hátíðleika sínum. Hamrahlíðarkórarnir hafa komið fram á ótal tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands og bjartur og tær hljómur þeirra hentar tónlist Händels sérlega vel. Einleikari á Aðventutónleikunum er Elfa Rún Kristinsdóttir sem hefur vakið verðskuldaða athygli víða um heim og var nýverið tilnefnd til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs.“