24.06.2025
Við erum búin að loka skrifstofunni fyrir sumarfrí og opnum aftur fimmtudaginn 7. ágúst. Hafið það sem best í fríinu og mætum öll endurnærð til baka.
20.06.2025
Í dag innrituðust tæplega 280 nýnemar sem munu hefja nám í MH haustið 2025. Við bjóðum þau öll hjartanlega velkomin og erum mjög spennt að fá að kynnast þeim öllum. Auk þeirra munu tæplega 40 eldri nýnemar flytjast yfir í MH úr öðrum framhaldsskólum landsins. MH-fjölskyldan hefur þar með stækkað heilmikið og eru spennandi ár framunda.
Nánari upplýsingar munu berast í pósti á næstu dögum og einnig hér á heimasíðuna þegar nær dregur skólabyrjun.