Fréttir

Ómi söngur í hamranna hlíð

Kór MH heldur tvenna tónleika á Miklagarði laugardaginn 7. nóvember kl 16 og kl 18. Hefðbundin kórverk hljóma í bland við frumflutning verka. Í tilefni af 60 ára afmæli skólans var efnt til tónverkakeppni og á tónleikunum mun Kór MH frumflytja verðlaunaverk keppninnar eftir tónskáldið Björn Önund Arnarson. Gestakór verður Kammerkórinn Huldur sem fagnar 5 ára afmæli á þessum tónleikum. Huldur frumflytur verkið 8:20 eftir Kolbein Bjarnason við ljóð Sóleyjar Mjallar Ásgeirsdóttur, nemanda í MH. Verkið hlaut sérstaka viðurkenningu dómara í tónverkakeppninni. Almennt miðaverð: 3.000 kr. / Eldri borgarar og öryrkjar: 2.000 kr. / Frítt fyrir námsmenn. Ágóði sölunnar rennur í ferðasjóð kórsins. Miðasala: https://tix.is/event/22508/omi-songur-i-hamranna-hlidÓmi