Fréttir

Stundatöflur vorannar 2018 / Timetables for Spring 2018

Stundatöflur vorannar 2018 (see English below) Stundatöflur nemenda opnast laugardaginn 30. desember. Nýir greiðslulistar eru keyrðir inn að morgni dags virka daga og opnast stundatöflur í kjölfarið. Þeir sem telja sig þurfa töflubreytingu eiga að sækja um sem allra fyrst. Breyttar töflur birtast í Innu eftir því sem þær vinnast. Fyrstir koma fyrstir fá! Ef tafla á að vera tilbúin fyrir fyrsta kennsludag þarf breytingabeiðni að berast eigi síðar en kl. 18:00 þriðjudaginn 2. janúar. Stokkakerfi stundatöflu MH má sjá inn á mh.is undir námið. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá föstudaginn 5. janúar kl. 09:00. Námsgagnalisti/bókalisti er aðgengilegur í Innu. Timetables for Spring 2018 Students who have paid their tuition fee can check their timetable on Inna December 30th at 4PM. If necessary apply for changes to your class timetable as soon as possible and before noon on August 16th.

Upphaf vorannar 2018 / Beginning of Spring Semester 2018

Kennsla á vorönn 2018 hefst föstudagurinn 5. janúar kl. 9:00 samkvæmt stundatöflu. Kynningarfundur fyrir nýja nemendur verður haldinn fimmtudaginn 4. janúar kl. 14:00 inn á Miklagarði og er afar mikilvægt að nýir nemendur mæti á þann fund. Stundatöflur nemenda verða aðgengilegar í INNU laugardaginn 30. des. eftir kl. 16:00. Nemendur athugið að til þess að sjá heila viku af stundatöflu þarf að skoða vikuna 8.-14. janúar. Skrifstofa skólans opnar 3. janúar kl. 8:30. First day of teaching on new year is 5th of January at 9:00AM. An orientation for new students will be 4th of January at 2PM in Mikligarður. It is very important for new students to attend the meeting. Student timetables will be accessable in INNA 30th of December at 4PM. The school will open on 3rd of January at 8:30AM

Opnun skrifstofu yfir jólahátíðirnar

Dagana 22., 28. og 29. desember er skrifstofa skólans opin 10:00-14:00. Skrifstofan verður opnuð 3. janúar á nýju ári kl. 08:30. Gleðilega hátíð og njótið jólanna með fjölskyldu og vinum.

Brautskráning MH haust 2017

Þann 21. desember var brautskráður 181 stúdent frá skólanum af sex námsbrautum. Þrír nemendur luku námi af tveimur brautum og flestir brautskráðust af opinni stúdentsbraut eða 70 stúdentar . Dúxar skólans að þessu sinni voru tveir, þ.e. Sigrún Rósa Hrólfsdóttir og Kári Steinn Aðalsteinsson sem voru með 9,50 í meðaleinkunn. Alls voru brautskráðir 9 nemendur með ágætiseinkunn, þ.e. yfir 9,0 í meðaleinkunn. Brautskráningarhópurinn að þessu sinni er sá fjölmennasti um jól í 51 árs sögu skólans. Á almanaksárinu 2017 útskrifaði skólinn alls 333 nemendur á 8 námsbrautum. Fjöldi stúdenta með sérhæfingu í tónlist var að útskrifast að þessu sinni og spiluðu m.a. Klara Rosatti nýstúdent og Herdís Ágústa Linnet tónlist fyrir gesti áður en athöfnin hófst. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð söng á athöfninni undir stjórn Hreiðars Inga Þorsteinssonar auk þess sem nýstúdentar í kórnum fluttu tónlist og Ingibjörg Ragnheiður Linnet nýstúdent lék á trompet.

Útskriftaræfing 20. des. kl. 18 - Rehersal for graduation December 20th at 6 pm

Nemendur sem brautskrást fimmtudaginn 21. desember eiga að mæta á útskriftaræfingu miðvikudaginn 20. desember kl. 18:00. Gert er ráð fyrir að æfingin taki eina og hálfa klukkustund og er mjög áríðandi að öll útskriftarefni mæti tímanlega. All students who are graduating on Thursday December 21st are required to attend a graduation rehersal at 6 pm on Wednesday December 20th. the rehersal will aproximately be one and a half hour. Students are asked to be on time for the rehersal.

Dagskrá staðfestingardags 19. desember og birting einkunna

Mánudaginn 18. desember kl. 16:00 verða einkunnir birtar í INNU. Þann 19. desember er staðfestingardagur. Dagskrá staðfestingardags er eftirfarandi: Viðtalstímar valkennara verða frá 10:00 - 11:00 Prófasýning verður frá 11:15 - 12:15. Nemendur eru hvattir til þess að nýta sér þetta tækifæri til þess að skoða prófin því eftir þennan tíma fara prófin í geymslu. Staðfestingu og nauðsynlegri lagfæringu á vali dagskólanema þarf að vera lokið kl. 14:00 og skila þarf inn P-umsóknum fyrir kl. 14:00. Athugið að ekki verður hægt að sækja um P-áfanga í janúar. Grades will be published Monday 18th of Dec. at 16.00. Timetable on course selection day Tuesday Dec. 19th: Teachers assisting with course selection will be available from 10:00 - 11:00. Viewing of exams is possible from 11:15 - 12:15. Students are encouraged to use this opportunity to view the exams. Confirmation or adjustment of the course selection for spring semester has to be completed by 2 o´clock.

Nýskipuð skólanefnd MH

Nýskipuð skólanefnd MH kom saman í fyrsta sinn miðvikudaginn 6. desember. Nefndina skipa Hildur Sverrisdóttir, Karl Sigurðsson, Margrét M. Norðdahl, Ragnar Guðmundsson og Unnur Lilja Hermannsdóttir sem jafnframt mun gegna embætti formanns nefndarinnar. Fulltrúar starfsmanna í nefndinni eru Halldóra Björt Ewen og Stefan Christian Otto og fulltrúi foreldra er Halla Sigrún Arnardóttir. Forseti NFMH, Enar Kornelius Leferink er fulltrúi nemenda í skólanefnd. Rektor MH situr fundi skólanefndar með málfrelsi og tillögurétt. Hann er framkvæmdastjóri nefndarinnar og konrektor er ritari nefndarinnar. Skólanefndin fundar að jafnaði síðasta miðvikudag í mánuði, annan hvern mánuð.

Hollráð fyrir próf

Náms- og starfsráðgjafar MH hvetja nemendur til að mæta vel úthvíldir í próf, að borða hollan og góðan morgunmat á prófdag og mæta tímanlega í prófið. Þegar próf er tekið geta eftirfarandi þættir skipt miklu máli.