Þjónusta safnsins

Vinnuaðstaða

Á bókasafninu er góð vinnuaðstaða fyrir nemendur. 
Lesaðstaða er fyrir rúmlega 100 manns, hópvinnuborð, lesbásar og lesstofa.

Aðstoð

Bókasafnsfræðingar aðstoða kennara og nemendur skólans við upplýsingaleit.

Allir nýnemar fá kynningu á starfsemi og þjónustu safnsins í upphafi fyrstu annar. Auk þess læra þeir að leita í skrá safnsins í gegnum Leitir.is og kynnast helstu gagnasöfnum og upplýsingaveitum sem gagnast þeim í náminu.

  
Síðast uppfært: 31. mars 2022