Sigrún Ásta keppir fyrir hönd MH í Söngkeppni framhaldsskólanna
08.04.2026
Laugardaginn 11. apríl nk. verða úrslit Söngkeppni framhaldsskólanna sýnd í beinni útsendingu á RÚV. Útsendingin hefst klukkan 20:45 og verður fulltrúi MH Sigrún Ásta Magnúsdóttir. Sigrún Ásta er með númerið 900-9119 og hvetjum við öll til að kjósa með hjartanu.
Við óskum Sigrúnu Ástu góðs gengis á laugardaginn.