Fréttir

Menntabúðir MH og Verzló

MH er fyrirmyndarstofnun

Í gær var kynnt niðurstaða úr könnuninni Stofnun ársins. Skólinn varð í fjórða sæti í flokki stofnana með fleiri en 90 starfmenn en í hverjum stærðarflokki hljóta efstu fimm stofnanirnar sæmdarheitið Fyrirmyndarstofnanir og er MH í þeim flokki annað árið í röð. Þegar könnunin var framkvæmd síðast var skólinn í fimmta sæti og hækkar því um eitt sæti milli ára sem er afar jákvæð niðurstaða. Skólanum og starfsfólki er óskað til hamingju með niðurstöðuna.

Próftafla vorannar 2022

Próftafla vorannar hefur verið birt á heimasíðunni og nemendur geta einnig séð sína eigin próftöflu í Innu. Prófstjóri sendi póst í dag til að minna alla á að skoða próftöfluna sína og fara vel yfir hvort þið séuð í tveimur prófum á sama tíma eða í tveimur prófum á sama degi og getið þar með sótt um breytingu á próftöflunni ef þið viljið.

Góður árangur MH-inga í Almennu landskeppninni í efnafræði

Almenna landskeppnin í efnafræði fór fram í framhaldsskólum landsins fimmtudaginn 3. mars. Alls tók 51 nemandi þátt, úr fimm skólum en 15 efstu keppendunum er boðið að taka þátt í úrslitakeppni sem verður haldin í Háskóla Íslands helgina 2.-3. apríl næstkomandi. Fimm MH-ingar voru á meðal þeirra 15 efstu og komast áfram í úrslitakeppnina. Það eru þau Embla Nótt Pétursdóttir, Jón Halldór Gunnarsson, Matthías Jakob Sigurðsson, Iðunn Björg Arnaldsdóttir og Mikael Norðquist. Við óskum þeim til hamingju með árangurinn og óskum þeim góðs gengis í úrslitakeppninni.

Á móti straumnum

Föstudagskvöldið 11. mars frumsýndi Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð leikritið Á móti straumnum (Way Upstream e. Alan Ayckbourn) í leikstjórn Rebekku Magnúsdóttur. Leikritið fjallar um tvenn hjón sem leigja bát og fara saman í skemmtisiglingu. Siglingin tekur óvænta stefnu þegar bjargvættur þeirra reynist vera siðblindur sjóræningi sem tekur bátinn yfir. Á endanum verða þau öll að velja hvort þau eigi að sigla með eða á móti straumnum. Sýningin var mjög skemmtileg og sýndi leikhópurinn ótrúlega hæfileika á öllum sviðum. Við hvetjum alla sem tök hafa á að skella sér á sýninguna í Undirheimum. Upplýsingar um sýningartíma má finna á tix.is.

Valvika í gangi

Nemendur MH eru hvattir til að klára að velja áfanga fyrir haustönn 2022. Síðasti dagur til að velja er mánudagurinn 14. mars. Allar upplýsingar um valið má finna undir valhnappnum á heimasíðunni en valið sjálft er gert í Innu. Í beinu framhaldi af valviku er femínistavika undir stjórn femínistafélagsins Emblu. Dagskrá vikunnar má finna á heimasíðunni. Munið að velja og góða skemmtun í næstu viku.

Val fyrir haustönn 2022

Valið hefst í dag 4. mars með valtíma kl. 12:40. Þar geta nemendur fengið aðstoð við að velja þá áfanga sem passa best inn í þeirra námsferil og braut og rætt við umsjónarkennarann sinn um hvað sem er sem tengist náminu. Nemendur sem eru á opinni braut þurfa að hafa í huga hverjar kjörgreinar þeirra eru og láta umsjónarkennarann vita um leið og það liggur fyrir. Í áfangaframboði fyrir haustið kennir ýmissa grasa og verður gaman að sjá hvað nemendur velja. Valinu lýkur mánudaginn 14. mars og þá er skoðað, út frá valinu, hvaða áfangar verða í boði næsta haust. Það skiptir því miklu máli að velja og velja rétt miðað við námsleiðir hvers og eins.