Fréttir

Kynningarfundur í kvöld 30. ágúst

Stjórnendur MH bjóða foreldrum og aðstandendum nýnema til kynningarfundar í skólanum í kvöld þriðjudaginn 30. ágúst kl. 17:30. Dagskrá fundarins er sýnileg hér fyrir neðan og eftir dagskrá á Miklagarði er öllum boðið að fara í kennslustofur með umsjónarkennurum MH-inganna og heyra meira um starfið í MH. Athugið að örlitlar breytingar hafa verið á stofum frá því póstur var sendur út í síðustu viku.

Hafragrauturinn

Fyrsti hafragrautur haustannar var framreiddur í MH í dag og vakti mikla gleði hjá öllum. Grauturinn er nú borinn fram í fyrsta skipti í margnota skálum. Með grautnum er hægt að fá ýmiskonar útálát eins og kanil, salt, mjólk eða soyamjólk. Grautinn eiga nemendur að borða á Matgarði eða Miðgarði og setja svo skálar á þar til gerða vagna eða borð við enda salanna eftir að þau hafa klárað grautinn.

Dagskrá nýnemaviku 22.-26. ágúst

Nemendafélag MH, NFMH, heldur úti þéttskipaðri dagskrá fyrir nýnema vikuna 22.-26. ágúst. Dagskráin er eftirfarandi: MÁNUDAGUR - 22. ÁGÚST: Hádegi: Kökusala og bollasala á Matgarði. Kvöld: LEYNIKVÖLD í Norðurkjallara. ÞRIÐJUDAGUR - 23. ÁGÚST: Hádegi: BUSARAVE í Undirheimum. MIÐVIKUDAGUR - 24. ÁGÚST: Hádegi: Karaoke á Matgarði. Kvöld: BUSADJAMM í Norðurkjallara. FIMMTUDAGUR - 25. ÁGÚST: Eftir skóla: Skotbolti í íþróttahúsinu. FÖSTUDAGUR - 26. ÁGÚST: BUSAFERÐ, mæting hjá rútum kl 12:30 og brottför kl 13:00. Athugið að um dagsferð er að ræða (ekki gisting). Nánari upplýsingar um nýnemaferðina voru sendar á nemendur og aðstandendur í dag.

Stöðumat

Stöðumat fyrir nemendur MH í ensku, frönsku, ítölsku, japönsku, spænsku og þýsku verður haldið fimmtudaginn 25.8. kl. 16.00. Skráning fer fram hjá Jóhönnu Guðrúnu Gunnarsdóttur, námstjóra erlendra tungumála jog@mh.is.

Tvíþátta auðkenni og Office 365

Áður en nemendur skólans setja upp Office365 hugbúnaðarpakkann þurfa allir að virkja tvíþáttaauðkenni. Eldri nemendur gerðu það á síðustu önn en nýir nemendur þurfa að gera það núna. Leiðbeiningar um það má finna á heimasíðunni. Eftir það geta nemendur fylgt leiðbeiningum um Office 365 pakkann. Nemendur hafa verið að lenda í vandræðum en vonandi fá allir lausn sinna mála.

Skólasetning og upphaf kennslu fimmtudaginn 18. ágúst kl. 9:00

Skólasetning er kl. 9:00 á Miklagarði fimmtudaginn 18. ágúst og í kjölfar skólasetningar hefst kennsla. Á skólasetningu munu rektor og forseti NFMH flytja stutt ávörp. Við hvetjum alla nemendur skólans til að fjölmenna á Miklagarð og fagna upphafi skólaársins.

Stundatöflur tilbúnar í Innu

Stundatöflur eru núna sýnilegar í Innu. Endilega lesið vel pósta sem sendir hafa verið á alla nemendur skólans og má einnig finna hér á heimasíðunni undir Skólinn. Gleðilega haustönn 2022.

Stundatöflur haustannar

Stundatöflur nemenda verða sýnilegar í Innu sunnudaginn 14. ágúst, fyrir þá sem greitt hafa skólagjöld. Athugið að þið þurfið að nota rafræn skilríki eða íslykil til að komast inn á Innu. Eldri nemar sem telja sig þurfa töflubreytingu eiga að sækja um sem allra fyrst (eftir að stundatöflur birtast) í gegnum Innu. Breyttar töflur birtast í Innu eftir því sem þær vinnast. Hægt er að biðja um töflubreytingar í gegnum Innu til og með miðvikudeginum 17. ágúst. Eftir það þarf að fara til námstjóra eða áfangastjóra. Hvetjum við ykkur til að ganga frá þessu sem fyrst. Námsgagnalisti/bókalisti er aðgengilegur í Innu. Nýnemar sem eru að byrja í MH sækja EKKI um töflubreytingar í Innu heldur geta gert það hér í MH, hjá námstjórum, milli 10:00 og 14:00 15., 16. og 17. ágúst. Timetables for Fall 2022 Students who have paid their tuition fees can check their timetable on Inna. If you are an IB student all your changes have to go through Soffía Sveinsdóttir. Futher information about the start of the school will come later.

Upphaf skólaársins 2022-2023

Gleðilega haustönn! Nú líður að upphafi skólaársins og væntanlega ríkir tilhlökkun hjá nemendum að mæta aftur í skólann. Skrifstofa skólans er opin 8:30-12:00 og 12:30-15:30. Við minnum á eftirfarandi við upphaf skólaársins: Stundatöflur birtast hjá þeim sem greitt hafa skólagjöldin sunnudaginn 14. ágúst. Töflubreytingar hefjast um leið og töflur hafa verið birtar. Eldri nemendur skólans geta gert töflubreytingar í Innu en nýnemar og eldri nýnemar sem eru að hefja nám hjá okkur í fyrsta skipti núna í haust þurfa að koma og hitta námstjóra ef þeir telja sig þurfa töflubreytingar. Áfangalista má finna á heimasíðunni. Námstjórar verða við milli 10:00 og 14:00 15., 16. og 17. ágúst. Nýnemakynning verður 17. ágúst kl. 13:00 á Miklagarði. Fyrsti kennsludagur verður 18. ágúst og hefst með skólasetningu inn á Miklagarði kl. 9:00. Nemendur fá sendan tölvupóst með upplýsingum í lok vikunnar og hvetjum við ykkur til að lesa hann vel.