Fréttir

Mætingayfirlit

Mætingayfirlit hefur verið sent á nemendur og foreldra nemanda yngri en 18 ára.

Femínistafélagið Embla á Jafnréttisdegi Mosfellsbæjar

Femínistafélagið Embla tók nýlega þátt í Jafnréttisdegi Mosfellsbæjar. Félagið hefur verið áberandi í jafnréttisumræðunni og er það góð viðurkenning fyrir starf félagsins að vera boðið að vera þátttakandi á Jafnréttisdeginum í Mosfellsbæ.

“Góður svefn er ódýrasta sálfræðimeðferðin”

Bóas Valdórsson sálfræðingur MH segir í viðtali við Morgunblaðið að svefn sé ódýrasta sálfræðimeðferðin. Í viðtalinu segir Bóas: „Ég reyni að fara yfir þetta allt með þeim og hvað þau geta gert til þess að bæta líðan sína. Þar bendi ég fyrst á ódýr­ustu sál­fræðimeðferðina sem er svefn. Að sofa nægj­an­lega mikið til þess að geta tek­ist á við áskor­an­ir dag­lega lífs­ins óþreytt er senni­lega besta ráðið sem hægt er að gefa ungu fólki.“ Menntaskólinn við Hamrahlíð var einn af fyrstu framhaldsskólum landsins til að ráða sálfræðing til starfa með hagsmuni nemenda að leiðarljósi.

Kort af MH

Aðalfundur foreldraráðs MH

Aðalfundur foreldraráðs MH verður þriðjudaginn 18. sept kl. 20 í stofu 11. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest , munum að öflugt foreldrastarf styður við börnin okkar í leik og starfi.

Heimsmarkmiðin og fundur ungmennaráðsins

Við í MH eigum fulltrúa í ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Þau funduðu um daginn í húsakynnum Utanríkisráðuneytisins með formanni Loftslagsráðs, fulltrúa stjórnar Ungra Umhverfissinna og Þróunarsamvinnuskrifstofu um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Í lok fundar fengu fulltrúarnir svo plaggöt með sér heim til þess að hengja upp í sínum skólum og kynna Heimsmarkmiðin fyrir samnemendum sínum. Á myndinni má sjá okkar fulltrúa Sigurð Einarsson Mäntylä við markmið 15: Líf á landi.