Fréttir

Verkfall

Nú liggur fyrir að ekki næst að semja við kennara fyrir boðað verkfall 17. mars. Meðan verkfallið varir fellur niður öll kennsla annarra en fáeinna stundakennara. Eftir sem áður hafa nemendur aðgang að bókasafni og almennum vinnusvæðum.

MH er sigurvegari Gettu betur 2014

MH er sigurvegari í spurningakeppni íslenskra framhaldsskóla, Gettu betur, en liðið fór með sigur af hólmi í viðureign kvöldsins gegn Borgarholtsskóla. Þórgnýr, Leifur Geir og Kristinn Már skiluðu langþráðum hljóðnemanum til MH í kvöld. Vel gert og til hamingju öll!

Upplýsingafundur rektors kl. 12

Hringt verður út úr tíma kl. 12 í dag 14. mars til fundar á sal.  Rektor fer í stuttlega yfir stöðuna vegna verkfalls sem gæti hafist á mánudag.  

Í dag, 13. mars er dagur líkamsvirðingar

Í dag, 13. mars er dagur líkamsvirðingar. Líkamsvirðing felst í því að bera virðingu fyrir líkama sínum og annarra. Það þýðir að við hugsum vel um líkamann okkar og hugsum fallega til hans. Í ár er þessum skilaboðum sérstaklega beint til ungs fólks. Í dag eru 40% stúlkna í kjörþyngd annað hvort að reyna að léttast eða telja sig þurfa að léttast. Tölfræðilegt samband ríkir milli líkamsþyngdar og lífsánægju stúlkna. Önnur hver unglingsstúlka á Íslandi fer í megrun og vaxandi fjöldi ungra drengja. Þegar komið er upp í framhaldsskóla uppfyllir einn af hverjum tíu nemendum greiningarviðmið fyrir átröskun. Þetta er ekkert náttúrulögmál. Þetta eru afleiðingar umhverfisskilyrða sem við höfum skapað börnunum okkar. Þeim þarf að breyta ef við óskum þeim bjartari framtíðar. Verum ánægð með okkur!

Opið hús fyrir grunnskólanema 12. mars kl. 17 - 19

Miðvikudaginn 12. mars verður opið hús í MH frá kl. 17:00-19:00 fyrir grunnskólanema og forráðamenn þeirra. Í opnu húsi verður námsframboð, inntökuskilyrði og félagslíf skólans kynnt. Námstjórar, kennarar, stjórnendur og náms- og starfsráðgjafar munu sitja fyrir svörum um námsframboð og annað sem gestum liggur á hjarta varðandi nám við skólann. Náms-og starfsráðgjafar verða með glærusýningu um brautir skólans og ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir þá sem huga á nám hér í M.H. Nemendur kynna félagslíf nemenda og NFMH Glæsilegt bókasafn skólans verður opið gestum og einnig gefst tækifæri til þess að kíkja í hinar ýmsu kennslustofur. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur kl. 18:00

Heimsókn fiðlusnillingsins Midori

Skólinn fékk góða heimsókn í dag þegar  fiðluleikarinn Midori sem er meðal kunnustu tónlistarmanna heims spilaði á Miklagarði, hátíðarsal skólans. Ferill hennar spannar ríflega 30 ár en hún vakti heimsathygli þegar hún kom fram með Fílharmóníusveit New York aðeins ellefu ára gömul. Síðan þá hefur hún verið einn af eftirsóttustu fiðluleikurum veraldar. Midori sinnir samfélagsstörfum af mikilli elju og óskar eftir því að fá að heimsækja stofnanir, skóla og aðra þá staði þar sem hún getur kynnt tónlist fyrir gestum og gangandi. Stokkfullur hátíðarsalur hlustaði af þvílíkri innlifun að heyra hefði mátt saumnál detta meðan Midori spilaði undurvel. Í lok tónleikanna svaraði Midori spurningum úr salnum sem bæði voru fjölbreyttar og skemmtilegar. Takk fyrir okkur!

Munið að velja fyrir næstu önn!

Sjá frétt hér neðar á síðunni með leiðbeiningum og tenglum.

Góður árangur í landskeppni framhaldsskólanema í efnafræði

Nýverið lauk árlegri landskeppni framhaldsskólanema í efnafræði. Að lokinni undankeppni var 15 efstu nemendunum boðið til úrslitakeppni sem fram fór í Háskóla Íslands. Í þeim hópi voru tveir nemendur frá MH, þau Freyja Björk Dagbjartsdóttir og Atli Freyr Magnússon, og stóðu þau sig bæði mjög vel. Atli Freyr náði 2. sæti og vann með því rétt til þátttöku í liði Íslands sem fer á ólympíuleika í efnafræði, en þeir verða haldnir í Hanoi í Víetnam nú í sumar. Þá varð Freyja Björk í 8. sæti. Til hamingju!

Íslandsmót og framhaldsskólakynning í Kórnum 6. - 8. mars

Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynning fer fram dagana 6. til 8. mars í Kórnum í Kópavogi. Námsráðgjafar MH, Björg, Gunnhildur og Sigríður Birna eru á staðnum og kynna skólann.

Forinnritun nemenda í 10. bekk verður 3. mars til 11. apríl

Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1998 eða síðar) hófst mánudaginn 3. mars og lýkur föstudaginn 11. apríl. Nemendur fá bréf frá Námsmatsstofnun með veflykli að innritunarvef og leiðbeiningum afhent í grunnskólunum. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf í pósti frá Námsmatsstofnun með upplýsingum um innritunina. Nemendur í 10. bekk eru eindregið hvattir til að taka þátt í forinnrituninni. Lokainnritun nemenda í 10. bekk verður 5. maí til 10. júní. Nánari upplýsingar um innritun í framhaldsskóla má fá á menntagatt.is og hjá Námsmatsstofnun í síma 550 2400. Hér má finna upplýsingar um námsbrautir og inntökuskilyrði brauta. Innritun annarra en 10. bekkinga verður 4. apríl til 31. maí