Fréttir

Kærar þakkir fyrir komuna

Foreldrar og forráðamenn nýnema fjölmenntu á kynningarkvöld hér í MH síðastliðið fimmtudagskvöld. Eftir að hafa hlýtt á ávörp Lárusar H. Bjarnasonar rektors og Halldóru Bjartar Ewen íslenskukennara fengu gestir að njóta söngs Kórs Menntaskólans við Hamrahlíð. Svo var farið í kennslustofur með umsjónarkennurum, fræðst um kerfið hér í MH og skipst á skoðunum. Að öllu þessu loknu var sameinast í kafffi og kökum á Miðgarði. Hlaðborðið sem kórinn bauð upp á var eins og í almennilegri fermingarveislu og með góðgæti á diski og kaffi í bolla urðu umræður fjörugar og skemmtilegar. Kærar þakkir til allra sem komu og gerðu kvöldið fræðandi og skemmtilegt.

Fréttabréf og kynningarkvöld 27.9.- Introductory evening for parents and guardians

Á hverju hausti er foreldrum nýrra nemenda sent fréttabréf með ýmsum hagnýtum upplýsingum og hugleiðingum frá stjórnendum, kennurum og nemendum. Ritstjórar eru Ragnhildur Richter og Steingrímur Þórðarson íslenskukennarar. Í nýju Fréttabréfi til foreldra og forráðamanna nýnema er boðað til kynningarfundar í skólanum 27. september nk. kl. 20:00 - 21:30. Í bréfinu gefur að líta dagskrá kynningarfundarins en þar eru einnig stuttir pistlar til hugleiðingar fyrir nemendur og forráðamenn þeirra. Jafnframt eru þar ýmsar hagnýtar upplýsingar um skólann. Introductory evening for parents and guardians –Dear parents or guardians of new students attending MH, The school administration wishes to welcome you to an introductory gathering in the school on Thursday, September 27th 2012 from 8 pm to 9:30 pm. We look forward to collaborating with you in the education of the young people who are beginning their studies in MH.

Þingvallaferð miðvikudaginn 19. september

Lífsleikniferðin til Þingvalla er í dag, miðvikudag. Í ferðinni eru rúmlega 200 nemendur og 8 kennarar í 5 rútum. Farið var frá skólanum kl. 8:15 í yndislegu haustveðri.