Fréttir

Almanak haustannar

Nemendur eru hvattir til að kynna sér vel almanak haustannar. Þar er að finna mikilvægar dagsetningar viðburða í skólastarfinu sem og upplýsingar um skráningarfresti og próftímabil.

Lokafrestur til þess að staðfesta P-áfanga

Lokafrestur til að staðfesta P-áfanga hjá kennara er föstudaginn 1. september.

Upphaf skólaársins

Nemendur og starfsfólk er boðið velkomið á haustönn 2017. Nýnemar mæta á kynningafund á sal (Mikligarður) fimmtudaginn 17. ágúst kl. 13:00 Skólasetning er kl. 8:30 föstudaginn 18. ágúst og hefst kennsla í kjölfarið samkvæmt stundatöflu. Beiðnir um töflubreytingar er hægt að senda inn (tafla@mh.is) til kl. 12:00 miðvikudagsinn 16. ágúst. Lokadagur til að segja sig úr áfanga án falls er 25. ágúst og frestur til að staðfesta P-áfanga hjá kennara er 31. ágúst. Nemendur eru hvattir til að kynna sér vel almanak haustannar sem er aðgengilegt á heimasíðu skólans.

Stundatöflur haustannar 2017 (see English below)

Stundatöflur haustannar 2017 (see English below) Stundatöflur nemenda opnast föstudaginn 11. ágúst. Nýir greiðslulistar eru keyrðir inn að morgni dags virka daga og opnast stundatöflur í kjölfarið. Nýnemar geta nálgast nánari upplýsingar og leiðbeiningar hér. Þeir sem telja sig þurfa töflubreytingu eiga að sækja um sem allra fyrst. Breyttar töflur birtast í Innu eftir því sem þær vinnast. Fyrstir koma fyrstir fá! Ef tafla á að vera tilbúin fyrir fyrsta kennsludag þarf breytingabeiðni að berast eigi síðar en kl. 12:00 miðvikudaginn 16. ágúst. Stokkakerfi stundatöflu MH má sjá hér. Smellið hér til þess að fá eyðublað og sendið það síðan í viðhengi á netfangið tafla@mh.is Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá föstudaginn 18. ágúst að lokinni skólasetningu á sal kl. 8:30. Námsgagnalisti/bókalisti er aðgengilegur í Innu. Timetables for Fall 2017 Students who have paid their tuition fee can check their timetable on Inna August 11th. If necessary apply for changes to your class timetable as soon as possible and before noon on August 16th. Click here to get the sheet that you need to fill out if you apply for changes to your class timetable, fill it out and send it as an attachment to tafla@mh.is Teaching will start on Friday August 18th after a short welcoming from the headmaster. The booklist/námsgagnalisti is accessible in Inna.