Fréttir

Office 365 fyrir nemendur

Nemendur MH hafa nú aðgang að Office 365 hugbúnaðarpakkanum. Leiðbeiningar um uppsetningu er hægt að nálgast hér á heimasíðu skólans undir þjónusta

Þýskar og franskar kvikmyndir

Þýska sendiráðið er að bjóða upp á ókeypis nemandasýningu í Bíó Paradís á myndina DAS SCHWEIGENDE KLASSENZIMMER (the silent revolution). Hún gerist 1957 í menntaskóla í austurþýskalandi og er byggð á sannsögulegum atburði. Myndin er með enskum texta og er ókeypis í kvöld kl 20 (og ef mætt er tímalega er boðið upp á pop og gos með). Í beinu framhaldi af þýskri mynd er svo hægt að fara á franska kvikmyndaviku sem stendur til 17. febrúar. Þýsku og frönsku kennarar í MH hvetja alla til að kynna sér þetta nánar.

Háskólahermirinn

Dagana 7. og 8. febrúar taka um 30 nemendur úr MH þátt í Háskólaherminumí HÍ. Þátttakendur heimsækja fræðasvið Háskóla Íslands og leysa ýmis verkefni. Eftir heimsóknina ættu þeir að hafa góða innsýn í námsframboð HÍ og hugmyndir um hvað nám á mismunandi sviðum felur í sér. Það kostar ekkert að taka þátt í Háskólaherminum. Nemendur fá hádegisverð báða dagana. Háskólahermirinn er hugsaður fyrir þá nemendur sem eru u.þ.b. hálfnaðir með nám sitt í framhaldsskóla. Góða skemmtun.

Lífffræðikeppni framhaldsskólanna

Nýlega var haldin Líffræðikeppni framhaldsskólanna. Þátttakendur voru 281 þar af 20 úr okkar skóla. Þeir 18 stigahæstu fara áfram í úrtökupróf sem haldið verður 15. mars, þar ræðst hverjir verða í landsliði Íslands sem fer í alþjóðlegu Ólympíukeppnina sem haldin verður í Szeged í Ungverjalandi í júlí 2019. Í 18 manna hópnum voru tveir MH-ingar þau Hafdís Ósk Hrannarsdóttir og Jón Klausen. Það verður spennandi að fylgjast með þeim.

Vegleg gjöf frá foreldrafélaginu til nemenda

Í dag afhenti foreldraráð MH nemendafélaginu borðtennisborð. Borðið mun án efa hafa mikið aðdráttarafl og hvetja nemendur til leiks. Hægt verður að fá lánaða borðtennisspaða og kúlur á bókasafninu. Takk fyrir þessa skemmtilegu gjöf !

Jöfnunarstyrkur fyrir nemendur

Athygli er vakin á jöfnunarstyrki fyrir nemendur sem sækja nám fjarri lögheimili og fjölskyldu. Hægt er að sækja um styrkinn með rafrænum skilríkjum inn á www.lin.is og island.is Umsóknarfrestur er til 15. febrúar næstkomandi.

Sinfónískir dansar úr West Side Story

Föstudaginn 25. janúar kl. 11:00 er nemendum og starfsfólki skólans boðið í Hörpu á Sinfóníska dansa úr West Side Story í boði Sinfóníuhljómsveitar Íslands. MH-ingar munu fjölmenna enda frábær skemmtun í boði. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 10:35 og verða rútur staðsettar á bílaplani vestanmegin við skólann. Nemendur mæta í tíma þar sem verður lesið upp og í kjölfarið farið í rúturnar. Áætluð heimkoma er um 12:15.

Lið MH áfram í þriðju umferð Gettu betur

Lið MH keppti á móti liði Fjölbrautaskóla Suðurnesja sl. þriðjudag. Leikar fóru þannig að MH sigraði með 28 stigum gegn 6 stigum Suðurnesjamanna. Glæsilegur árangur en næsta viðureign fer fram í febrúar í sjónvarpinu og er andstæðingurinn MR líkt og í fyrra. Við óskum liðinu til hamingju með sigurinn en það skipa Gunnar Ólafsson, Jenný María Jóhannsdóttir og Tómas Ingi Hrólfsson.

Loksins meiri flokkun á rusli

Í byrjun þessarar viku fjölguðum við ruslatunnum svo hægt væri að flokka m.a. plast og lífrænan úrgang. Búið er að setja tunnur fyrir plastúrgang inn á Matgarð, inn á Miðgarð og í Norðurkjallara. Tunnur fyrir lífrænan úrgang má finna inni á Matgarði og Miðgarði. Einnig verður eftir sem áður hægt að flokka pappír, dósir/plastflöskur og almennt rusl. Athugið að hreinsa matarleyfar eins vel og þið getið úr plastílátum áður en þau eru sett í þar til gerða tunnu. Verum dugleg að flokka þannig að skólinn sé til fyrirmyndar í umhverfismálum.

Sigur í smásagnasamkeppni

Melkorka Gunborg Briansdóttir sigraði í Smásagnakeppni félags enskukennara, annað árið í röð. Melkorka útskrifaðist frá MH núna um jólin. Við óskum henni til hamingju með árangurinn og óskum henni alls hins besta í framtíðinni.