Fréttir

MH-60 ára

Laugardaginn 26. september verður mikil hátíð í MH þegar skólinn fagnar 60 ára afmæli. Nemenda- og hollvinasamtök MH hafa stofnað afmælisviðburð sem við hvetjum alla MH-inga til að skrá sig á. Dagskráin er að mótast og má lesa meira um hana á afmælissíðunni.

29 verk bárust í tónverkakeppnina

Afmælisnefnd MH, í samvinnu við Beneventumsjóð, stendur fyrir samkeppni um tónverk fyrir Kór Menntaskólans við Hamrahlíð, samið við ljóð eftir núverandi eða fyrrum nemendur skólans. Þátttakendur gátu valið úr fimm ljóðum en höfundar þeirra eru: Gerður Kristný, Guðrún Lilja Ólafsdóttir, Hallgrímur Helgason, Lofn og Sóley Mjöll Ásgeirsdóttir. Ljóðin og nánari upplýsingar um keppnina má finna hér. Skilafrestur tónverkanna rann út 14. ágúst og ótrúlegt en satt þá bárust 29 verk í keppnina. Nú bíður dómnefndar að njóta þess að fara yfir öll innsendu verkin og úrslit verða tilkynnt laugardaginn 26. september á afmælishátíð skólans. Takk kærlega fyrir frábærar undirtektir tónskáld!

Listdansarar í Dublin

MH-ingar á listdansbraut og jafnframt í framhaldsdeild Listdansskóla Íslands tóku þátt á heimsmeistaramóti í dansi (Dance World Cup) í júli í Dublin. Þau voru í hópi 11.500 dansara frá alls 60 löndum og hrepptu silfur í Ballett Large Group Senior, silfur í Solo Showstopper Senior, brons í Jazz Small Group, brons í Lyrical duett Senior, 6. sæti í Solo Ballett Repertoire Junior, 10. sæti í Lyrical Large Group Senior og 15. sæti í Solo jazz Junior. Einnig fengu tveir dansarar Golden Ticket fyrir sólóin sín í Ballett og Showstopper sem er sérstök viðurkenning dómara sem er veitt aukalega fyrir aðgöngu í Masterclasses á Spáni. Á myndunum eru Iðunn (nýstúdent), Indiana, Lísa, María, Rita (nýstúdent vor 2026) og Þorkatla ásamt öðrum dönsurum, skólastjóra og kennara úr LÍ. Dansarnir kepptu í mismunandi mörgum flokkum, sum í einum og önnur í 4-5.

Gulir skápar

Í skólanum eru 200 gulir skápar sem nemendur geta leigt lykil að. Umsókn um gulan skáp fer fram á heimasíðunni og er hlekkur undir Gagnlegt efni.

Nýnemadagur mánudaginn 17. ágúst

Nýnemakynningin fer fram mánudaginn 17. ágúst kl. 13:00–15:00. Þar fá nemendur tækifæri til að kynnast skólanum, hitta umsjónarkennarann sinn og fá mikilvægar upplýsingar um fyrstu dagana í MH

Búið að opna fyrir stundatöflur nemenda

Búið að opna fyrir stundatöflur nemenda. Öll sem hafa greitt skólagjöld sjá stundatöflur og bókalista áfanga. Einnig hefur verið opnað fyrir umsóknir eldri nemenda um töflubreytingar í Innu, en opið verður fyrir þær umsóknir til og með sunnudeginum 16. ágúst.

Stundatöflum seinkar

Vinna við stundatöflugerð hefur tafist og þurfum við meiri tíma til að klára töflurnar. Stefnt er að því að birta þær fyrir föstudaginn.

Inna lokuð fram í næstu viku

Nú er skólinn að vinna í stundatöflum nemenda og því hefur Innu verið lokað um stundarsakir. Stefnt er að því að opna hana aftur eftir kl. 16 miðvikudaginn 12. ágúst. Þá munu þau sem hafa greitt skólagjöld sjá stundatöflur og bókalista áfanga.

Bronsverðlaun í efnafræði

Fannar Smári Jóhannsson, stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð í vor, hlaut bronsverðlaun á Ólympíuleikunum í efnafræði sem haldnir voru í Tashkent, höfuðborg Úsbekistan, í vikunni. Fannar Smári vann sér inn keppnisrétt með því að verða í öðru sæti í úrslitakeppninni í Efnafræði sem haldin var í vor. Þar var hann jafnframt efstur í verklega hluta keppninnar. Fréttin er fengin af mbl.is Skv. heimildum hafa Íslendingar fengið bronsið nokkrum sinnum t.d. 2023, 2018, 2015, 2011, 2010 og 2008 https://icho-official.org/results/country_info.php?country=Iceland

Frönskuverðlaun

Móttaka var haldin í boði Alliance française og franska sendiráðsins sl. miðvikudag þar sem verðlaunahöfum í frönsku voru veittar viðurkenningar. Karólína Thoroddsen nýstúdent, var verðlaunahafi MH og óskum við henni innilega til hamingju. Félicitations!