Heimsókn í Mannréttindahúsið

Nemendur á Fjölnámsbraut í þverfaglegum áfanga, spænsku og Heimsmarkmiðin heimsóttu Mannréttindahúsið í dag og fengu kynningu frá Félagi Sameinuðu þjóðanna og Átaki, félags fólks með þroskahömlun. Einnig sögðu þau starfsfólki frá sínum verkefnum sem þau eru búin að vinna með í vetur og tengjast Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.