Guðmundur Flóki Sigurjónsson ásamt landsliðsþjálfaranum Richard Fairhurst.
TKÍ
MH-ingurinn Guðmundur Flóki vann til silfurverðlauna á alþjóðlega stigamótinu Dracula Open í taekwondo í Búkarest í Rúmeníu um helgina. Hann vann fjóra bardaga á leið sinni í úrslit í flokki undir 87 kílóum, meðal annars gegn keppendum sem hafa tekið þátt á Ólympíuleikum eða eru meðal tíu efstu á heimslistanum.
Guðmundur Flóki keppir alla jafna í flokki undir 80 kílóum og er þar í 22. sæti heimslistans. Hann keppti þó að þessu sinni í þyngri flokki. Með þessum sigri sýndi hann að hann á heima með þeim bestu í heiminum. Næst á dagskrá eru alþjóðleg stigamót í Kongó í desember.
Lesa má nánar um viðtalið við Guðmund Flóka á www.ruv.is, https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/2026-10-30-gudmundur-floki-stefnir-a-olympiugull-491262