Bleika slaufan

Það er gaman að segja frá því að annar hönnuður bleiku slaufunnar í ár er MH-ingurinn Tanja Levý. Slaufan varð til samhliða krabbameinsmeðferð Tönju og veitir einstaka innsýn í ferlið þegar krabbamein kollvarpar tilverunni. Baráttukveðjur frá MH og við hvetjum ykkur öll til að kaupa bleiku slaufuna.