05.03.2026
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri kíkti í heimsókn á miðvikudaginn af tilefni hverfadaga í Reykjavík. Hún rölti með stjórnendum um húsið og heilsaði upp á nemendur. Gaman að sjá hversu vel nemendur tóku á móti henni og voru tilbúnir að ræða við hana um skólann og lífið.Takk fyrir komuna til okkar.
26.02.2026
Föstudaginn 27. febrúar verður starfsþróunardagur hjá starfsfólki framhaldsskólanna og erum við í MH að taka á móti kennurum í erlendum tungumálum.
Skrifstofa skólans verður lokuð og kennsla fellur niður.
25.02.2026
Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð frumsýnir söngleikinn Djúpt inn í skóg föstudaginn 6. mars.
Rúmlega 100 nemendur koma að uppsetningu þessa söngleiks og við erum svo spennt að fá að sýna ykkur hvað við höfum gert. Hæfileikar svífa innan veggja MH og má finna hæfileikaríkt fólk ýmist á sviðinu eða á bakvið tjöldin. Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrir verkinu og Gunnlaugur Bjarnason er tónlistarstjóri. Nemendur hafa unnið hart að verkinu síðan í haust og skilar það sér svo sannarlega á sviðinu.
Miðasala fer fram á TIX.IS . Nemendur í MH fá miðann á 3.990 kr. Við vonumst til þess að sjá ykkur djúpt inni í skóginum, á Miklagarði í MH!
22.02.2026
Við verðum með opið hús í MH fimmtudaginn 5. mars frá kl. 17:00 - 18:30. Við hvetjum 10. bekkinga til að líta við í skólanum og kynna sér námsframboðið, félagslífið og allt annað sem skiptir máli þegar velja á framhaldsskóla. MH er meira en bara skóli.
18.02.2026
Það er vetrarfrí í MH dagana 19. og 20. febrúar og vonum við að nemendur og starfsfólk noti tímann vel til að safna orku fyrir seinni hluta annarinnar. Sjáumst aftur mánudaginn 23. febrúar
10.02.2026
Eins og margir vita stendur yfir keppni í hreyfingu hjá landsmönnum sem kallast Lífshlaupið (https://www.lifshlaupid.is/). Um leið og við hvetjum alla til að taka þátt og skrá daglega hreyfingu langar okkur að gorta okkur af afreksfólki í hreyfingu sem vinnur í MH.
10.02.2026
Lagningardagar standa yfir og er dagskráin einstaklega fjölbreytt og skemmtileg. Kynningar á viðburðum þriðjudagsins má nálgast hér og kynningar á viðburðum miðvikudagsins má nálgast hér. Dagskránna sjálfa má finna hér.
05.02.2026
Á Lagningardögum verður margt fróðlegt og frábært í boði. Þriðjudaginn 10. febrúar munu verða hér fulltrúar frá hinum ýmsu háskólum, lýðskólum AFS, kynning á námi erlendis og styrkjum og ýmislegt annað verulega spennandi og fróðlegt verður í boði.
01.02.2026
Lagningardagar eru þemadagar Menntaskólans við Hamrahlíð. Þemadagarnir verða 10. og 11. febrúar, þar sem nemendur, kennarar og utanaðkomandi aðilar verða með allskonar viðburði. Nemendur fá stimpla fyrir mætingu á viðburði sem samsvarar mætingu í skólann. Samtals þarf að safna 10 stimplum yfir báða dagana. Lagningardagar eru skipulagðir af Lagningardagaráðinu. Tilgangur Lagningardaga er að leyfa nemendum að læra um frjálst efni að eigin vali og á meðan þemadagar standa yfir er hefðbundin kennsla lögð niður. Í tilefni þess að skólinn verður 60 ára á þessu ári verður afmælisþema.
28.01.2026
Í MH er fjölbreyttur starfsmannahópur. Þar á meðal er Mahdya Malik en hún kennir ensku í MH og hefur verið búsett á Íslandi í 11 ár. Hún skrifaði grein á visir.is í desember sl. sem ber heitið: "Á milli heima: blætisvæðing erlendra kvenna, klámdrifin viðhorf og stafrænt ofbeldi á Íslandi." Í kjölfarið birtist einlægt viðtal við hana á visir.is þar sem hún vekur athygli á þeim fordómum sem konur af erlendum uppruna mæta á Íslandi, ekki síst á netinu.