31.05.2011
Upplýsingar um prófin má nálgast hér.
28.05.2011
Brautskráning stúdenta fer fram á Miklagarði, hátíðarsal skólans laugardaginn 28. maí. Athöfnin hefst kl. 14:00 og lýkur um kl.
16:00. Að lokinni útskrift er sameiginleg myndataka stúdenta.
19.05.2011
Í dag halda kórarnir í Hamrahlíð upp á prófalok og sumarkomu með skemmtun í
hátíðarsal Menntaskólans við Hamrahlíð. Þetta er hið árlega Vorvítamín, sem kórarnir bjóða
til.
Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Kórfélagar, nú í vor rúmlega 100 talsins, halda tvenna tónleika, kl. 14 og kl. 16. Efnisskrár
tónleikanna eiga að vekja með öllum vorhug og sumargleði, þar er að finna blöndu gamalla gersema og nýrra. Kórarnir flytja
m.a.tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Ásgeirsson, Jón Nordal, Jón Þórarinsson, Misti
Þorkelsdóttur og Snorra S. Birgisson. Einnig verða sungin sumar- og ættjarðarlög og vonast er til að allir gestir
taki undir með kórunum.
Milli tónleika verður kaffisala og ýmis skemmtiatriði kórfélaga, hljóðfæraleikur, ævintýraheimur fyrir
krakka, bangsaspítali, vísindahorn, kennsla í salsa, heilsuhorn, leyniatriði og fl.
Þá verða seld sumarblóm og ágóði af sölu rennur í ferðasjóð Hamrahlíðarkóranna. Nú í
sumar verður Hamrahlíðarkórinn fulltrúi Íslands á Aberdeen International Youth Festival sem er eina
alþjóðlega listahátíðin í Evrópu þar sem flytjendur eru allir ungt fólk.
Fögnum björtum dögum og köllum á hlýindin með kórunum í Hamrahlíð í dag.
19.05.2011
Nú eru einkunnir nemenda fyrir vorönn aðgengilegar í Innu. Þá geta nemendur staðfest val sitt ef þeir þurfa ekki að gera neinar
breytingar. Öllum nemendum er skylt að staðfesta val sitt fyrir næstu önn ætli þeir sér að stunda nám í skólanum þá.
Sjá nánari lýsingu á staðfestingarferli í Áföngum
fréttabréfi frá skólanum um val og staðfestingu
Prófasýning í Dagskóla og Öldungadeild verður þann 19. maí milli kl. 12 og 13.
Ef breyta þarf vali þá er listi yfir þá áfanga sem
verða í boði í haust aðgengilegur hér á heimasíðunni.
20.05.2011
Munið prófasýningu fyrir bæði dagskóla og öldungadeild kl. 12-13 föstudaginn 20. maí.
20.05.2011
Föstudaginn 20. maí
Viðtalstími valkennara kl. 9-11.
Prófasýning dag og öld um hádegi (kl. 12-13).
Lokadagur fyrir staðfestingu vals. Staðfestingu lýkur kl 14:00.
02.05.2011
Þessa dagana eru próf í dagskólanum. Próftöfluna sjá nemendur í Innu en einnig er hægt að sjá ýmsar upplýsingar
varðandi prófreglur, prófstjórn og yfirlitstöflu prófa með því að velja flipann Námið hér að ofan og smella
svo á Próf í lista til vinstri.
Við minnum nemendur og alla sem eiga erindi til okkar að ganga hljóðlega um á prófatíma svo nemendur í prófum nái að uppskera sem
mest.
29.04.2011
Föstudaginn 29. apríl kveðja dimitantar kennara og aðra starfsmenn skólans. Fyrst bjóða þau öllum í morgunmat á Matgarði kl. 7:30 og
síðan kveðja þau með athöfn á sal kl. 11:10 - 12:10.
27.04.2011
Farið verður til Þingvalla, með tilheyrandi sögu- og náttúruskoðun og heimsókn í Írafossvirkjun, í dag, 27. apríl kl.
12:10. Mætið með nesti, í góðum skóm og í skjólgóðum fötum.