01.12.2011
Nemandi sem ekki getur mætt í próf vegna veikinda skal tilkynna skrifstofu skólans það símleiðis fyrir kl. 14 hvern dag sem hún/hann á
að vera í prófi. Þá fær nemandinn upplýsingar um sjúkrapróf. Nemandinn mætir í sjúkrapróf á tilsettum
tíma og skilar þar læknisvottorði fyrir veikindadaginn/dagana. Sé um langvarandi veikindi að ræða skal nemandi hafa samband við
prófstjóra Guðmund Arnlaugsson sögukennara.
Hann er með viðtalstíma kl. 10 - 11 í st. 38 og símaviðtalstíma, S:5955200, kl. 10:30 – 11:00 alla prófdagana. Hann afgreiðir allar
undanþágur.
22.11.2011
Hamrahlíðarkórarnir halda tónleika í Kristskirkju í Landakoti miðvikudagskvöldið 23. nóv. kl. 20.
Kórarnir flytja verk eftir íslensku tónskáldin Þorkel Sigurbjörnsson og Huga Guðmundsson en Hamrahlíðarkórinn vinnur um þessar
mundir að geisladiski með verkum Huga. Auk þess flytur kórinn tónverkið ....which was the son of.... eftir Arvo Pärt en verkið er tileinkað
Þorgerði Ingólfsdóttur. Þá eru á efnisskránni einnig verk eftir Gil Aldema, Olivier Messiaen og Alessandro Scarlatti.
60 kórfélagar skipa nú Hamrahlíðarkórinn og á tónleikunum í Landakoti syngur einnig Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð í nokkrum verkum. Það verða því tæplega 130 ungmenni sem syngja á tónleikunum en þeir hefjast kl. 20. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
22.11.2011
MH liðið í Leiktu betur, gerði sér lítið fyrir og kom sá og sigraði í keppni framhaldsskólanna sem fram fór
í Tjarnarbíói þann 12. nóvember. Þau Elín Björnsdóttir, Hákon Jóhannesson, Thelma Lind Waage og Vigdís Perla Maack
sigruðu undankeppnina innan skólans, héldu sínu striki til enda og fóru frekar létt með sigurinn. Leiktu Betur keppni framhaldsskólanna er sú
keppni sem MHingar hafa sigrað lang oftast. Til hamingju MH með einstaka spunameistara.
01.11.2011
Innritun í dagskóla fyrir vorönn 2012 fer fram dagana 1. til 22. nóvember. Applications for regular classes, spring 2012 is open from Nov. 1st to Nov.
22nd.
Allar
umsóknir um nám í dagskóla eru rafrænar. Sótt er um á netinu á skólavef menntamálaráðuneytisins, menntagatt.is. Registration is on menntagatt.is.
Information about applications to the IB programme. Please us this link to register online
01.11.2011
Góðgerðavika þessarar annar var haldin þann 31.október til 3.nóvember. Gekk hún vonum framar og með góðri
þáttöku nemenda skólans söfnuðust 300.000 þúsund krónur. Rennur það fjármagn til UNICEF í
Austu-Afríku.
Hér má sjá frétt á heimasíðu UNICEF á Íslandi.
Þeir sem stóðu að skipulagningu vikunnar voru meðlimir Góðgerðaráðs NFMH.
31.10.2011
Opnað hefur verið fyrir valið i Innu og því lýkur í dag mánudaginn 31. okt.
Áfangar með lýsingu á framgangi valsins og áfangaframboð hefur nú
þegar verið sett á heimasíðu MH.
You can start choosing courses in Inna for the spring term 2012.
Now you can look at the your choice of courses for next term. Áfangar and áfangaframboð are now available on our homepage.
19.10.2011
Próftafla nemenda fyrir haustönn 2011 er nú aðgengileg í Innu. Hægt er að sjá próftöfluna með því að fara í Innu og smella
á Próftafla á lista vinstra megin. Athugið að próftaflan er einungis aðgengileg í Innu. Dagskólanemar mega sækja um að hliðra
próftöflu sinni ef:
18.10.2011
Frá stjórn Foreldraráðs MH:
Foreldraráð MH heldur aðalfund og fræðslufund í húsakynnum skólans þriðjudaginn 25. október kl 19:30. Á dagskrá eru
m.a. venjuleg aðalfundarstörf, umræður um þátt foreldraráðs í verkefninu MH Heilsueflandi framhaldsskóli og tveir stuttir
fyrirlestrar um vímuefnavarnir. Kaffiveitingar í boði skólans.
Núverandi formaður Foreldraráðs, Viðar Ágústsson...
12.10.2011
Skólinn verður lokaður vegna haustfrís frá kl. 14:00 miðvikudaginn 12. október til kl. 14:00 mánudaginn
17. október.
05.10.2011
Í dag, fimmtudaginn 6.október, verður haldinn hinn árlegi MH-Kvennó dagur. Keppnin byrjar kl. 15:15 á Klambratúni og hringt verður út
úr tíma kl. 15:00. Skólarnir keppa í hinum ýmsu íþróttum. Kl. 19:00 verður síðan ræðukeppni í sal MH.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
-Stjórn NFMH