25.05.2025
19 MH-ingar í ferðaáfanga í spænsku, heimsóttu hina fögru Granada á Spáni í síðustu viku. Þar skoðuðu þau meðal annars hina undurfögru Alhambra höll, sögufræg hverfi, torg og turna. Þau fóru í fjallaferð og böðuðu sig í ískaldri á og fóru í gönguferðir í náttúrunni. Lokadeginum var varið á strönd og heitum strætum Málaga. Þau voru öll sem eitt skóla og þjóð til sóma, fróðleiksfús og miklir göngugarpar og þakkar hópurinn fjallgönguáfanganum í MH fyrir góðan undirbúning í þeim efnum. Takk fyrir ferðina Andalucía 2025!
21.05.2025
Fimmtudaginn 22. maí er staðfestingardagur og sýnidagur prófa. Allar upplýsingar um áfangaframboð haustannar má finna á heimasíðu skólans undir "Námið".
20.05.2025
Nú er prófum lokið hjá langflestum MH-ingum og kennarar sitja sveittir við að ganga frá einkunnum. Opnað verður fyrir einkunnir í Innu fimmtudaginn 22. maí.
12.05.2025
Nýir MH-ingar hafa litið dagsins ljós í Útgarði og njóta þess að fá að búa þar. Á meðan þreyta eldri MH-ingar próf og njóta þess að hlusta á róandi fuglasönginn. Síðasta próf verður á föstudaginn og þá geta eldri og yngri MH-ingar flogið saman út í sumarið.
Umsóknartímabilið stendur einmitt yfir fyrir nýnema haustannar og hvetjum við þau sem vilja kynna sér MH að skoða hvað skólinn hefur upp á að bjóða.
05.05.2025
Í þessum heilsumola ræðir Erla íþróttakennari og þáttastjórnandi við Sólrúnu Ósk Lárusdóttur, sálfræðing í MH um prófkvíða, af hverju hann stafar og hvað er hægt að gera til þess að minnka áhrif hans á okkur.
05.05.2025
Í dag er fyrsta próf skv. próftöflu og standa prófin yfir til og með 16. maí. Próftafla nemenda er sýnileg í Innu og próftaflan í heild sinni er á heimasíðunni. Staðsetningu prófa má finna á heimasíðunni. Veikindi á prófdegi þarf að tilkynna samdægurs í Innu, fyrir kl. 14. Gangi ykkur sem best og passið upp á næringu og hvíld.
02.05.2025
Föstudaginn 24. apríl hélt Kór MH af stað í tónleikaferð um Norðvesturland. Kórinn byrjaði á að syngja fyrir yngstu nemendur Helgafellsskóla í Mosfellsbæ og svo lá leiðin til Húnabyggðar. Daginn eftir var haldið til Skagastandar í blíðskaparveðri, þar sem nemendur heimsóttu Spákonuhof og héldu tónleika í Hólaneskirkju. Eftir það lá leiðin til Blönduóss þar sem kórinn hélt tónleika í Blönduóskirkju. Gist var tvær nætur á Reykjum í Hrútafirði. Ferðin endaði svo með viðkomu í Reykholtskirkju í Borgarfirði þar sem haldnir voru lokatónleikar annarinnar. Mjög vel heppnuð ferð í alla staði.
02.05.2025
MH-ingarnir Högni Gylfason og Helgi Þórir Sigurðsson urðu í 3. sæti í keppni Ungra frumkvöðla með borðspil sem þeir hönnuðu frá grunni byggt á færnimerkjum skáta. Spilið er ætlað skátum í leik og starfi.
30.04.2025
Í dag gafst útskriftarefnum skólans kostur á að kveðja kennara, starfsfólk og samnemendur. Dagurinn byrjaði með morgunverði á Matgarði í boði útskriftarefna, næst var skemmtun á sal fyrir alla og að lokum fóru nemendur út í vorið og gerður sér glaðan dag. Til hamingju með síðasta kennsludaginn öll og gangi ykkur vel í prófunum.
30.04.2025
Í gær var tilkynnt um val á íþróttafólki ársins hjá Knattspyrnufélagi Reykjavíkur. Skemmst er frá því að segja að íþróttakarl ársins var valinn taekwondo-maðurinn og MH nýneminn Guðmundur Flóki Sigurjónsson en það hefur ekki farið fram hjá lesendum MH síðunnar að hann hefur náð frábærum árangri að undanförnu.