Fréttir

Brautskráning stúdenta

Stúdentar verða brautskráðir kl. 14. Útskriftin tekur um tvo klukkutíma og að henni lokinni verður sameiginleg myndataka nýstúdenta.

Útskriftaræfing

Öll stúdentsefni sem ætla að vera viðstödd útskrift eiga að mæta á útskriftaræfingu föstudaginn 24. maí kl. 18:00. Þau stúdentsefni sem ekki verða viðstödd útskrift eiga að láta Pálma áfangastjóra vita sem allra fyrst.

Prófatími 29. apríl til 14. maí

Veikindi á prófdegi verður að tilkynna skrifstofu skólans (S: 5955200) fyrir kl. 14:00 samdægurs. Þá fær nemandinn upplýsingar um sjúkrapróf. Nemandinn mætir í sjúkrapróf á tilsettum tíma og skilar þar læknisvottorði fyrir veikindadaginn. Guðmundur Arnlaugsson prófstjóri er með viðtalstíma kl. 10 - 11 í st. 38. Gangi ykkur vel í prófunum!

Námsnetið lokað milli 9 og 15 laugardaginn 4. maí

Unnið verður að nauðsynlegri uppfærslu Námsnetsins (Myschool) milli 9 og 15 laugardaginn 4. maí og því verður aðgangi lokað á meðan. Þau sem þurfa að nota gögn úr Námsnetinu á þessum tíma eru því hvött til þess að sækja þau fyrir uppfærslu en að henni lokinni verða öll gögn aftur aðgengileg.

MH stúdent fær hvatningarverðlaun Eðlisfræðifélagsins

Um nokkurra ára skeið hefur Eðlisfræðifélag Íslands veitt efnilegustu nemendum HÍ og HR hvatningarverðlaun, einum úr hvorum skóla. Sigtryggur Hauksson fyrrverandi nemandi í MH var HÍ nemandinn sem fékk þessa viðurkenningu á síðasta aðalfundi Eðlisfræðifélagsins. Til hamingju Sigtryggur!

Vorvítamín í MH á Sumardaginn fyrsta: Hamrahlíðarkórarnir kalla á vorið

Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25.apríl, halda kórarnir í Hamrahlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur upp á sumarkomu með skemmtun í hátíðarsal Menntaskólans við Hamrahlíð. Kórfélagar kalla skemmtunina Vorvítamín. Kórfélagar, sem eru 111 talsins á þessari vorönn, halda tvenna tónleika. Þeir fyrri hefjast kl.14.00 og hinir seinni hefjast um kl.16.00. Á milli tónleikanna og á eftir verða seldar kaffiveitingar en ágóði af sölu veitinga renna í ferðasjóð Hamrahlíðarkóranna.  Þá verða ýmis skemmtiatriði og uppákomur m.a.leikir fyrir börn,bangsa- og dúkkuspítali, hljóðfærastofa, vísinda- og tilraunastofa, ljósmyndastofa og fatamarkaður. Aðgangur er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir að syngja inn vorið með kórunum í Hamrahlíð. Efnisskrár tónleikanna eiga að vekja með öllum vorhug og sumargleði. Þar er að finna blöndu gamalla gersema og nýrra og m.a. verða flutt nokkur sumar- og ættjarðarlög, sem allir ættu að geta sungið með kórunum.

MH vann Söngkeppni framhaldsskólanna 2013

Ásdís María Ingvarsdóttir og Oddur Ingi Kristjánsson færðu MH sigur í Söngkeppni framhaldsskólanna á Akureyri um helgina. Ásdís María söng lagið Pink Matter með Frank Ocean og Oddur Ingi, sem endurgerði lagið, lék undir á tölvu.  Hér er tengill í frétt á mbl.is. Til hamingju Ásdís María og Oddur Ingi!

Nemandi MH vann keppni Félags frönskukennara og Sendiráðs Frakklands á Íslandi

Laugardaginn 6. apríl var haldin árleg keppni Félags frönskukennara og Sendiráðs Frakklands á Íslandi. Um er að ræða keppni framhaldsskólanema sem senda inn stutt myndbönd þar sem þau tjá sig á frönsku. Í ár var þemað ÁSTIN. Vinningshafi var Gríma Eir Geirs Irmudóttir nemandi í FRA603. Til hamingju Gríma Eir!

Próftafla og umsóknir nemenda um breytingar

Nemendur athugið. Próftafla ykkar er nú aðgengileg á Innu. Nemendur mega sækja um að hliðra próftöflu sinni ef: Tvö próf eru á sama tíma Þrjú próf eru á sama degi Ef tvö löng próf, lengri en ein klukkustund hvort próf, eru á sama degi. Ekki er leyft að breyta próftöflu vegna ferðalaga! Nemendur sem uppfylla ofangreind skilyrði geta sent Guðmundi Arnlaugssyni prófstjóra (profstjori@mh.is) tölvupóst fyrir föstudaginn 12. apríl.

Páskaleyfi

Föstudagurinn 22. mars er síðasti kennsludagur fyrir páska. Í dymbilviku og um páskahelgina verður skrifstofa skólans lokuð. Eftir páska verður skrifstofan opnuð kl. 8:30 þriðjudaginn 2. apríl. Kennsla hefst aftur að loknu páskaleyfi miðvikudaginn 3. apríl kl. 8:10.