Fréttir

Viðurkenning

Á málræktarþingi íslenskrar málnefndar sem haldið var í Þjóðmenningarhúsinu í gær var sérstaklega fjallað um íslensku sem annað mál og börn með erlendan bakgrunn í íslensku skólakerfi. Þar afhenti Guðrún Kvaran, formaður íslendrar málnefndar, þremur einstaklingum viðurkenningu fyrir árangursríkt starf á þessu sviði. Meðal þeirra var Valgerður Garðarsdóttir sem tók við viðurkenningu vegna starfs hennar, Þóreyjar Torfadóttur og annarra hér á bæ í þágu umrædds nemendahóps, ekki síst vegna þeirrar séraðstoðar utan kennslustunda sem viðkomandi nemendum gefst kostur á. Frétt mbl.is

Próftafla og umsóknir nemenda um breytingar

Nemendur athugið. Próftafla ykkar er nú aðgengileg á Innu. Nemendur mega sækja um að hliðra próftöflu sinni ef: Tvö próf eru á sama tíma Þrjú próf eru á sama degi Ef tvö löng próf, lengri en ein klukkustund hvort próf, eru á sama degi. Ekki er leyft að breyta próftöflu vegna ferðalaga! Nemendur sem uppfylla ofangreind skilyrði geta sent Guðmundi Arnlaugssyni prófstjóra (profstjori@mh.is) tölvupóst fyrir föstudaginn 8. nóvember. Próftafla í desember 2013

Dagur gegn einelti 8. nóvember

Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti "Við undirrituð skuldbindum okkur til þess að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar. Við munum standa vörð um rétt fólks til þess að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt. Við munum sérstaklega gæta réttar barna og ungmenna sem og einnig allra hópa sem ekki eiga sér málsvara eða sterka rödd. Við munum öll hvert á okkar sviði, skuldbinda okkur til þess að hafa áhrif til góðs á nánasta umhverfi okkar. Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til þess að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er". Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti undirritaður af samstarfsaðilum Sýndu í verki að þú sért á móti einelti og skrifaðu undir þjóðarsáttmálann  Í Menntaskólanum við Hamrahlíð er einelti ekki liðið. Ef grunur vaknar um einelti meðal nemenda eða starfsmanna skal strax tekið á málum. Hér má lesa hver er stefna og viðbragðsáætlun MH gegn einelti  Stefna og viðbragsáætlun MH gegn einelti 

Haustfrí

Skólinn er lokaður vegna haustfrís föstudaginn 18. og mánudaginn 21. október. Hafið það gott í haustfríinu!

Góður árangur í forkeppni stærðfræðikeppninnar

Við óskum Ásgrími Ara Einarssyni, Emil Kára Magnússyni, Guðna Fannari Kristjánssyni, og Kára Gunnarssyni til hamingju með góðan árangur í forkeppni stærðfræðikeppni framhaldsskólanema sem fram fór 8. október síðastliðinn.  Með góðum árangri hafa þessir nemendur áunnið sér rétt til þátttöku í lokakeppninni sem fram fer í mars á næsta ári. Þess ber að geta að Kári Gunnarsson var í þriðja sæti á neðra stigi og vann til bókaverðlauna. Við óskum honum innilega til hamingju með árangurinn.

Valvika 7-14 október

Allir nemendur sem ætla að stunda nám í skólanum á vorönn 2014 verða að velja áfanga fyrir næstu önn. Valið er bindandi og stendur frá 7.- 14. október. Þess vegna ættu allir að fara að huga að valinu, skoða ”Upplýsingar um val” og áfanga í boði til að glöggva sig á framgangi valsins. Leiðbeiningar um innslátt á vali eru í handbók forráðamanna á heimasíðu MH. Yfirlit yfir brautir og námsferilsblöð skv. nýrri námskrá má nálgast hér.  It is high time to select courses for the spring term 2014. Now you can enter the courses of your choice for next term. Áfangar and áfangaframboð are now available on our homepage.

Aðalfundur Foreldraráðs MH kl. 20 miðvikudaginn 9. okt.

Aðalfundur Foreldraráðs MH verður miðvikudaginn 9.okt kl 20 í stofu 11.   Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf eins og skýrsla stjórnar og kosning stjórnar. Fræðsluerindi kvöldsins er um Núvitund og kynnir Bryndís Jóna Jónsdóttir notkun gjörhygli til að minnka árekstra í samskiptum foreldra og unglinga. Allir foreldrar nemenda í MH velkomnir.

Silfurverðlaun í hjólað í skólann

MH hlaut silfurverðlaun í keppninni hjólað í skólann í flokki skóla með yfir 1000 nemendur og starfsmenn. Verðlaunaafhending Hjólum í skólann var föstudaginn 27. september í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Veitt voru verðlaun fyrir flesta þátttökudaga hlutfallslega miða við heildar fjölda nemenda og starfsmanna í skólanum og fengu þrír efstu framhaldsskólarnir í hverjum flokki viðurkenningu fyrir sinn árangur. Vel gert MH-ingar! Karen Björk Eyþórsdóttir forseti NFMH og duglegustu hjólagarparnir Sigurrós Eggertsdóttir  og Urður Steinunn Önnudóttir Sahr með verðlaunaskjöld MH.

Fréttabréf og kynningarkvöld 30.9.- Introductory evening for parents and guardians

Á hverju hausti er foreldrum nýrra nemenda sent fréttabréf með ýmsum hagnýtum upplýsingum og hugleiðingum frá stjórnendum, kennurum og nemendum. Ritstjórar eru Ragnhildur Richter og Steingrímur Þórðarson íslenskukennarar. Í nýju Fréttabréfi til foreldra og forráðamanna nýnema er boðað til kynningarfundar í skólanum mánudaginn 30. september nk. kl. 20:00 - 21:30. Í bréfinu gefur að líta dagskrá kynningarfundarins en þar eru einnig stuttir pistlar til hugleiðingar fyrir nemendur og forráðamenn þeirra. Jafnframt eru þar ýmsar hagnýtar upplýsingar um skólann. Introductory evening for parents and guardians –Dear parents or guardians of new students attending MH, The school administration wishes to welcome you to an introductory gathering in the school on Monday, September 30th 2013 from 8 pm to 9:30 pm. We look forward to collaborating with you in the education of the young people who are beginning their studies in MH.

Nemendur MH héldu málþing um kynjakvóta í Gettu betur

Menntaskólinn við Hamrahlíð er fylgjandi reglum um kynjakvóta. Úr frétt á frétt RÚV Blásið var til málþings um kynjakvóta í Gettu betur í Norðurkjallara Menntaskólans í Hamrahlíð í dag. Ákvörðun um að sérhvert lið í Gettu betur vorin 2015 og 16 skuli vera skipað keppendum af báðum kynjum hefur vakið nokkrar deilur. Úr frétt á Visir.is „Það hefur sýnt sig og sannað í gegnum þessu 28 ár sem Gettu betur hefur verið haldin að það sárvantar stelpur inn í keppnina. Þá þurfa fleiri stelpur að taka þátt svo þær geti orðið fyrirmyndir fyrir þær sem yngri eru. Stundum þarf bara að grípa inn í," segir Karen Björk Eyþórsdóttir, forseti NFMH.