Fréttir

Opnunartími skrifstofunnar fram að byrjun vorannar 2020

Skrifstofan verður lokuð mánudaginn 30. desember til og með 2.janúar 2020. Þann 3.janúar verður skrifstofan opin frá 10:00 - 15:00. Mánudaginn 6. janúar koma nýnemar vorannar í skólann kl. 13:00 og kennsla hefst þriðjudaginn 7. janúar kl. 9:10 skv. stundaskrá. Við þökkum fyrir árið sem er að líða og bíðum spennt eftir árinu 2020.

Brautskráning stúdenta Menntaskólans við Hamrahlíð 21. desember

Brautskráðir voru 98 stúdentar frá Menntaskólanum við Hamrahlíð af fimm námsbrautum, þar af tveir stúdentar sem luku námi af tveimur brautum. Að þessu sinni útskrifuðust flestir af opinni braut eða 43 nemendur, 33 af náttúrufræðibraut, 13 af félagsfræðabraut, 8 af málabraut og 3 af listdansbraut. Þrír nemendur voru brautskráðir með ágætiseinkunn á stúdentsprófi, þ.e. vegin meðaleinkunn yfir 9,00. Að þessu sinni var dúx skólans Sóley Halldórsdóttir nemandi á náttúrufræðibraut með 9,37 í meðaleinkunn. Sóley hlaut auk þess viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í líffræði. Semidúx var Anna Magnúsdóttir Eirúnardóttir sem útskrifaðist af málabraut með 9,26 í meðaleinkunn en hún hlaut einnig viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur í þýsku.

Opnun skrifstofu yfir jólahátíðirnar

Þann 27. desember nk. er skrifstofa skólans opin 10:00-14:00. Skrifstofan verður opnuð 3. janúar á nýju ári kl. 10:00. Gleðilega hátíð og njótið jólanna með fjölskyldu og vinum.

Brautskráning / Graduation

Brautskráning stúdenta verður laugardaginn 21. desember. Athöfnin fer fram á Miklagarði, hátíðarsal skólans, og hefst kl. 13:00. Graduation ceremony will be held on Saturday December 21th. The ceremony takes place in Mikligarður, the school auditorium starting at 1 pm.

Fjörutíu ár í MH

Steingrímur Þórðarson íslenskukennari við MH lætur nú af störfum eftir að hafa starfað við skólann í 40 ár. Steingrímur hefur gengt ýmsum trúnaðarstörfum við skólann og verið áfangastjóri, settur konrektor og settur rektor. Steingrímur var kvaddur á staðfestingardag og færð gjöf frá skólanum á þessum merku tímamótum en fátítt er að menn nái 40 árum á einum og sama vinnustaðnum. Við þökkum Steingrími fyrir vel unnin störf og farsælt og gjöfult samstarf.

Staðfestingardagur / Course selection day

MH-ingar karatefólk ársins

Margir af nemendum MH stunda afreksíþróttir svo eftir er tekið. Freyja Stígsdóttir nemandi á opinni braut var valinn karatekona ársins af Karatesambandi Íslands. Freyja hefur náð eftirtektarverðum árangri heima sem erlendis og unnið fjölda titla. Þess má geta að karatemaður ársins heitir Aron Anh og hann er einnig MH-ingur sem útskrifaðist 2018. Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn og nafnbótina.

Prófdagurinn 11. desember lofar góðu

Í dag, 11. desember verða próf haldin skv. áætlun. Nemendur eru hvattir til að mæta tímanlega. Exams are according to plan today.

Ráðstafanir vegna rauðrar veðurviðvörunar þriðjudaginn 10.12.2019

Nemendum sem búa utan höfuðborgarsvæðisins er bent á að tilkynna forföll Í Innu ef þörf þykir. Vinsamlegast tilgreinið búsetu og áfangaheiti í athugasemd. Sjúkraprófum í íslensku, sem áttu að vera kl. 15:00 þennan dag, er frestað fram til fimmtudagsins 12.12. kl. 11:00. Próf þriðjudaginn 10. desember kl. 9:00, 11:00 og 13:00 eru ráðgerð á óbreyttum tíma, en staðan verður endurmetin í upphafi dags (10. des.).

Ljóðadagskrá í Bólstaðarhlíð

Nemendur í valgreininni munnleg tjáning heimsóttu eldri borgara í Bólstaðarhlíð 43 nú í síðustu kennsluvikunni og fluttu ljóðadagskrá. Nemendurnir fluttu ljóðin utan að, af miklu öryggi, og fengu glimrandi viðtökur hjá áheyrendunum. Ljóðin voru klassískar perlur eða frumsamin ljóð eftir nemendurna sjálfa. Þetta er þriðja árið í röð sem tjáningarhópur fer með ljóðdagskrá í Bólstaðarhlíð. Að dagskrá lokinni fengu nemendur smákökur, kaffi og mandarínur.