19.01.2022
Þessa dagana er fjöldi nemenda í sóttkví eða með Covid og því skiptir miklu máli að þeir sem ekki geta sótt skólann viti hvað er í gangi í skólanum. Stoðþjónustan sendi út póst í gær þar sem ítrekað var mikilvægi þess að fylgjast vel með á Innu. Í Innu má líka finna ýmsar leiðbeiningar varðandi notkun hennar og er þær að finna undir flipanum Aðstoð.
Lesa meira
10.01.2022
Það er mikið líf og fjör í skólanum í dag enda fyrsti kennsludagur vorannar 2022 hafinn. Það er gaman að sjá glöð grímuklædd andlit nemenda að springa af spenningi að mæta í fyrsta tímann og hitta kennara og samnemendur. Við vonum að þetta gangi vel og að skóladagarnir verði margir og góðir. Við uppfærum heimasíðuna reglulega og setjum inn allar nýjustu upplýsingar svo allir viti sem best hvað er að gerast í MH. Hér á forsíðunni er hnappur sem heitir Kennsla í Covid-19 og geymir hann ýmsar gagnlegar upplýsingar varðandi sóttvarnir og Covid-19. Undir Skólinn, Nemendur og forráðamenn er hlekkur sem geymir alla pósta sem frá okkur fara til allra nemenda eins og sá sem fór út í morgun. Þar má t.d. finna upptöku af ávarpi rektors síðan í morgun. Gleðilega önn.
Lesa meira
30.12.2021
Kennsla hefst í MH mánudaginn 10. janúar kl. 8:10. Nemendur mæta í stofur skv. stundatöflu en stundatöflur verða aðgengilegar í INNU 2. janúar hjá þeim sem greitt hafa skólagjöldin. Í byrjun tímans verður ávarpi rektors streymt í allar kennslustofur. Töflubreytingar í INNU standa yfir frá og með öðrum til og með fimmta janúar og úrvinnsla beiðna hefst 3. janúar. Frá og með 6. janúar fara töflubreytingar fram hjá námstjórum og áfangastjóra.
Við hlökkum til að fá ykkur í hús.
School will start on Monday 10th of January and the first class starts at 08:10. Students attend classes according to their individual schedule but the class schedule can be seen in INNA from the 2nd of January. Class schedule changes in INNA will take place from 2nd to 5th of January and the processing of requests will begin on the 3rd of January. As of January 6th, class schedule changes will go through the MH course director and the study directors. We look forward to seeing you all at school.
Lesa meira
20.12.2021
Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með 22. desember til og með 2. janúar 2022. Þann 3. janúar verður skrifstofan opin frá 10:00-15:00 en frá og með 4. janúar er hefðbundinn opnunartími.
Nýnemar vorannar koma í skólann 5. janúar kl. 13:00 en kennsla hefst fimmtudaginn 6. janúar kl. 9:00 skv. stundaskrá. Nánari upplýsingar verða birtar á heimasíðunni þegar nær dregur.
Við þökkum fyrir árið sem er að líða og óskum öllum gleðilegra jóla.
Lesa meira
18.12.2021
Brautskráðir voru 97 nemendur frá Menntaskólanum við Hamrahlíð af fjórum námsbrautum. Að þessu sinni útskrifuðust flestir af opinni braut eða 67 nemendur, 15 af náttúrufræðibraut, 4 af málabraut og 11 af félagsfræðabraut.
Fimm nemendur voru brautskráðir með ágætiseinkunn á stúdentsprófi, þ.e. vegin meðaleinkunn yfir 9,00. Að þessu sinni var dúx skólans Benedikt Gylfason nemandi á opinni braut með framúrskarandi árangur, þ.e. 9,73. Benedikt hlaut auk þess viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur í ensku. Semidúx var Þórunn Arna Guðmundsdóttir sem útskrifaðist af opinni braut með 9,61 í meðaleinkunn en hún hlaut einnig viðurkenningu fyrir ágætan námsárangur í efnafræði, frönsku og líffræði.
Ávarp fyrir hönd nýstúdenta fluttu Benedikt Gylfason og Birgitta Sveinsdóttir.
Kór skólans var í stóru hlutverki undir stjórn Hreiðars Inga Þorsteinssonar og flutti nokkur verk auk þess sem aðrir nemendur og nýstúdentar fluttu tónlist. Dúx skólans samdi sérstaklega verk fyrir kór skólans sem var frumflutt af þessu sinni og heitir Í hlýju hjarta þér.
Lesa meira
17.12.2021
Brautskráning er laugardaginn 18. desember kl. 13:00. Að þessu sinni verða brautskráðir 97 nemendur af fjórum námsbrautum.
Dagskráin er eftirfarandi:
Ávarp rektors
Kórsöngur
Ræða konrektors
Kórsöngur
Afhending skírteina.
Fjöldasöngur Gaudeamus
Verðlaunaafhending
Ávarp nýstúdenta
Söngur nýstúdenta
Kveðja rektors
Fjöldasöngur: Heims um ból
Vefslóðin er inn á streymi af athöfninni er https://livestream.com/accounts/5108236/events/10003587
Lesa meira
14.12.2021
Staðfestingardagur er á morgun miðvikudaginn 15. desember og munu einkunnir birtast í Innu eftir kl. 16:00 í dag, 14. desember. Upplýsingar um staðfestingardag og prófsýningu má finna hér á heimasíðunni. Áfangaframboð næstu annar má einnig finna á heimasíðunni. Allir nemendur haustannar sem ætla að stunda nám á vorönn þurfa að staðfesta valið sitt í innu fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 15. desember.
Lesa meira
10.12.2021
Í dag var síðasti prófdagur skv. próftöflu og einungis nokkur sjúkrapróf eftir. Nemendur sem eiga eftir að koma í sjúkrapróf hafa fengið póst um það hvaða dag og klukkan hvað þeir eiga að mæta í prófin. Á miðvikudaginn er svo staðfestingardagur þar sem nemendur staðfesta val sitt fyrir komandi vorönn.
Lesa meira