Fréttir

Próftafla og umsóknir nemenda um breytingar

Próftafla nemenda fyrir haustönn 2011 er nú aðgengileg í Innu. Hægt er að sjá próftöfluna með því að fara í Innu og smella á Próftafla  á lista vinstra megin. Athugið að próftaflan er einungis aðgengileg í Innu. Dagskólanemar mega sækja um að hliðra próftöflu sinni ef:

Foreldraráð MH heldur aðal- og fræðslufund í MH 25. október kl 19:30

Frá stjórn Foreldraráðs MH: Foreldraráð MH heldur aðalfund og fræðslufund í húsakynnum skólans þriðjudaginn 25. október kl 19:30. Á dagskrá eru m.a. venjuleg aðalfundarstörf, umræður um þátt foreldraráðs í verkefninu  MH Heilsueflandi framhaldsskóli og tveir stuttir fyrirlestrar um vímuefnavarnir. Kaffiveitingar í boði skólans. Núverandi formaður Foreldraráðs, Viðar Ágústsson...

Haustfrí

Skólinn verður lokaður vegna haustfrís frá kl. 14:00  miðvikudaginn  12. október til kl. 14:00 mánudaginn  17. október.

MH - Kvennó dagur 6. október

Í dag, fimmtudaginn 6.október, verður haldinn hinn árlegi MH-Kvennó dagur. Keppnin byrjar kl. 15:15 á Klambratúni og hringt verður út úr tíma kl. 15:00. Skólarnir keppa í hinum ýmsu íþróttum. Kl. 19:00 verður síðan ræðukeppni í sal MH. Hlökkum til að sjá sem flesta.  -Stjórn NFMH

Innritun í Öldungadeildina stendur yfir

Innritun í öldungadeildina/kvöldskólann á seinni lotu haustannar 2011 stendur yfir. Smellið hér til að innrita ykkur. Kennsla seinni lotu hefst skv. stundaskrá mánudaginn 24. október.

MH heilsueflandi framhaldsskóli - opnunarhátíð

Opnunarhátíð verkefnisins MH heilsueflandi framhaldsskóli var í hádegihléi mánudaginn 26. september. Geir Gunnlaugsson landlæknir (og stúdent frá MH) heimsótti skólann og setti verkefnið formlega af stað. Nemendur fengu vatnsbrúsa frá Lýðheilsustöð/Landlækni og gulrófur frá Landsambandi gulrófnabænda. Fáni heilsueflandi framhaldsskóla var dreginn að húni. Til hamingju með daginn öll sömul!

Kærar þakkir fyrir komuna!

Foreldrar og forráðamenn nýnema fjölmenntu á kynningarkvöld hér í MH síðastliðið fimmtudagskvöld. Eftir að hafa hlýtt á ávörp Lárusar H. Bjarnasonar rektors og Áshildar Arnarsdóttur hjúkrunarfræðings, forvarnarfulltrúa og verkefnisstjóra MH í heilsueflandi framhaldsskóla fengu gestir að njóta söngs Kórs Menntaskólans við Hamrahlíð. Svo var farið í kennslustofur með umsjónarkennurum, fræðst um kerfið hér í MH og skipst á skoðunum. Að öllu þessu loknu var sameinast í kafffi og kökum á Miðgarði. Hlaðborðið sem kórinn bauð upp á var eins og í almennilegri fermingarveislu og með góðgæti á diski og kaffi í bolla urðu umræður fjörugar og skemmtilegar. Kærar þakkir til allra sem komu og gerðu kvöldið fræðandi og skemmtilegt.

Skráning í stöðupróf - Registration for placement tests

Stöðupróf verða haldin kl. 16:00 15. september í eftirfarandi tungumálum: Albönsku, bosnísku, eistnesku, filippísku, finnsku, grísku, hollensku, japönsku, kínversku, króatísku, litháísku, portúgölsku, pólsku, rússnesku, serbnesku, sinhala, taílensku, ungversku og víetnömsku. Placement tests will be held on September 15th at 4 pm in the following languages: Albanian, Bosnian, Chinese, Croatian, Dutch, Estonian, Filipino, Finnish, Greek, Hungarian, Japanese, Lithuanian, Portugese, Polish, Russian, Serbian, Sinhala, Thai, and Vietnamese. Upplýsingar og rafræn skráning - Information and online registration

Sinfóníutónleikar í Hörpu

Sinfóníuhljómsveit Íslands býður skólanum á framhaldsskólatónleika fimmtudaginn 1. september  kl. 11:00 í Eldborg í Hörpu þar sem Víkingur Heiðar Ólafsson mun leika með hljómsveitinni píanókonsert nr. 3 eftir Rachmaninov undir stjórn Daníels Bjarnasonar.

Dagskólinn verður settur 22. ágúst kl. 8:30 og að því loknu hefst kennsla skv. stundaskrá