Fréttir

Opið hús fyrir grunnskólanema 24. mars kl. 17:00-19:00

Fimmtudaginn 24. mars verður opið hús í MH  frá kl. 17:00-19:00 fyrir grunnskólanema og forráðamenn þeirra. Upplýsingar um umnsókn um skólavist, inntökuskilyrði námsbrauta og viðmiðunarreglur MH við inntöku nýnema má finna í valstikunni hér efst til vinstri. Meira um opna húsið...

Til hamingju Sigtryggur Hauksson og 5 aðrir nemendur MH

Þá liggja úrslit hinnar árlegu landskeppni í efnafræði fyrir. Í ár voru 115 þátttakendur í undankeppni sem fram fór í skólunum, þar af 19 úr MH. Af þeim sem stóðu sig best tóku 12 nemendur þátt í úrslitakeppni sem fram fór við Háskóla Íslands. Af þeim var helmingurinn eða 6 úr okkar skóla. Þau röðuðu sér síðan í eftirfarandi sæti:  1. Sigtryggur Hauksson,  4. Magnús Pálsson, 5. Ragnheiður Guðbrandsdóttir, 7. Anna Bergljót Gunnarsdóttir, 11. Stefán Carl Gunnarsson og 12. Signý Lea Gunnlaugsdóttir.

Til hamingju Sigtryggur Hauksson

Sigtryggur Hauksson, MH nemandi, sigraði í 16 nemenda úrslitum landskeppninnar í eðlisfræði. Lokakeppnin var haldin laugardaginn 19. og sunnudaginn 20. mars. Keppendur voru um 150 úr framhaldsskólum landsins. Minni frétt er að við verðlaunaafhendinguna á Háskólatorgi voru tveir kennarar, Davíð Þorsteinsson MR og Vésteinn Rúni Eiríksson MH, heiðraðir fyrir hve marga nemendur þeir höfðu lagt keppninni til.

Til hamingju Ingibjörg Iris Dager

Laugardaginn 19. mars fór fram keppnin Allons en France en í henni semja nemendur ljóð  á frönsku og flytja. Sigurvegari keppninnar var Ingibjörg Iris Dager úr MH. Hún hlaut í verðlaun 10 daga dvöl í Frakklandi í sumar með vinningshöfum frá öðrum löndum. Vel gert Ingibjörg Iris!

Próftafla og umsóknir nemenda um breytingar

Próftafla nemenda fyrir vorönn 2011 er nú aðgengileg í Innu. Hægt er að sjá próftöfluna með því að fara í Innu og smella á Próftafla  á lista vinstra megin. Athugið að próftaflan er einungis aðgengileg í Innu. Umsókn um tilhliðrun ásamt útskýringu þarf að berast í tölvupósti til prófstjóra (gud@mh.is) í síðasta lagi föstudaginn 8. apríl. Guðmundur Arnlaugsson prófstjóri, gud@mh.is Dagskólanemar mega sækja um að hliðra próftöflu sinni ef:

Góð frammistaða MH nema í stærðfræðikeppni framhaldsskólanema.

Úrslitakeppni framhaldsskólanema í stærðfræði fór fram laugardaginn 5. mars.   Góður árangur í úrslitakeppninni veitir rétt til þátttöku í Norrænu stærðfræðikeppninni sem verður haldin 4. apríl. Í þetta sinn munu 15 keppendur frá Íslandi taka þátt í Norrænu stærðfræðikeppninni og þeirra á meðal eru 4 nemendur MH.  Þeir eru Ásgeir Valfells, Haukur Óskar Þorgeirsson, Ragnheiður Guðbrandsdóttir og Sigtryggur Hauksson.    Við óskum þessum nemendum til hamingju með árangurinn.  Sérstök ástæða er til að óska Ásgeiri til hamingju, en hann lenti í öðru sæti í úrslitakeppninni.

Vali dagskólanema fyrir næstu önn lauk á miðnætti mánudaginn 14. mars!

Nemandi góður, ef þú hefur gleymt að velja eða ef einhver vandræði eru með val, hafðu samband við valkennarann þinn strax. Nafn valkennarans þíns birtist eins og þegar P-áfangar eða U-áfangar birtast í línu fyrir ofan töfluna ykkar í Innu.

Til hamingju Svandís Einarsdóttir

Svandís Einarsdóttir sigraði í þýskuþraut framhaldsskólanna sem fram fór 23. febrúar síðastliðinn. Hún fær að verðlaunum fjögurra vikna dvöl í Þýskalandi í sumar. Þátttakendur voru 75 úr 10 framhaldsskólum. Þetta er annað árið í röð sem sigurvegari kemur úr MH. Vel gert Svandís!

Tekur þú lýsi?

Samkvæmt könnun hér á heimasíðunni taka 66% aðspurðra lýsi annað hvort á hverjum degi eða óreglulega. Þriðjungur setur það hins vegar ekki inn fyrir sínar varir. Um hollustu fisks og fiskifitu þ.e. lýsis má lesa í grein á vef Lýðheilsustöðvar.

Nú er rétti tíminn til að fara að huga að vali fyrir næstu önn!

Búið er að opna fyrir val fyrir haustönn 2011. Vali á að vera lokið þann 14. mars. Áfangar með lýsingu á framgangi valsins og áfangaframboð hefur nú þegar verið sett á heimasíðu MH. It is high time to select courses for the autum term 2011. Now you can enter the courses of your choice for next term. The last day to select is Monday March 14th. Áfangar and áfangaframboð are now available on our homepage.