Lilja Rut Halldórsdóttir semidúx og Sóley Júka Magnúsd. Kuwahara dúx ásamt Helgu rektor
Í dag voru brautskráðir 127 nemendur frá Menntaskólanum við Hamrahlíð af 8 námsbrautum. Dúx skólans var Sóley Júka Magnúsd. Kuwahara , stúdent af náttúrufræðibraut með 9,88 í meðaleinkunn. Semidúx var Lilja Rut Halldórsdóttir stúdent af Náttúrufræðibraut með 9,83 í meðaleinkunn. Gaman að segja frá því að kór skólans, undir stjórn Hreiðars Inga Þorsteinssonar, frumflutti verk eftir föður hennar í tilefni dagsins. Mikið var um annan tónlistarflutning sem nýstúdentar sáu um ásamt kór skólans. Fyrir hönd nýstúdenta fluttu Dýrleif Kristín Flókadóttir og Illugi Vilhelmsson ræðu, Chadman Ian Naimi lék á píanó, Svanhildur Júlía Alexandersdóttir nýstúdent lék eigið lag á þverflautu og söng, ásamt Bjarka Steini Bjarti Jónssyni sem lék á píanó og kór nýstúdenta flutti verkið Lindin eftir Hreiðar Inga. Ótrúlegir hæfileikar fylltu salinn af fallegum tónum. Til hamingju með daginn og gleðilegt sumar.