Útskrift í dag

Í dag, 29. maí útskrifast 127 MH-ingar frá MH. Flestir útskrifast af opinni braut eða 57, 24 af IB braut, 20 af náttúrufræðibraut, 8 af félagsfræðabraut, 5 af málabraut, 7 af listdansbraut, 4 af listmenntabraut og 2 af fjölnámsbraut. Athöfnin hefst kl. 13:00 og mæta útskriftarefnin kl. 12:40. Á meðan beðið er eftir að athöfnin hefjist munu þær Þórhildur Vala Sigurðardóttir, Ástrós Eva Einarsdóttir og Ragnheiður Helga Víkingsdóttir leika á víólu, selló og píanó. Njótið stundarinnar.

Skrifstofan verður lokuð eftir hádegi.