Lagningardagar

Lagningardagar eru þemadagar Menntaskólans við Hamrahlíð. Þemadagarnir verða 10. og 11. febrúar þar sem nemendur, kennarar og utanaðkomandi aðilar verða með allskonar viðburði. Nemendur fá stimpla fyrir mætingu á viðburði sem samsvarar mætingu í skólann. Samtals þarf að safna 10 stimplum yfir báða dagana. Lagningardagar eru skipulagðir af Lagningardagaráðinu. Tilgangur Lagningardaga er að leyfa nemendum að læra um frjálst efni af eigin vali og á meðan þemadagar standa yfir er hefðbundin kennsla lögð niður. Í tilefni þess að skólinn verður 60 ára á þessu ári verður afmælisþema.

-

Lagningardagar are the theme days of Menntaskólinn við Hamrahlíð. They will be held on the 10th and 11th of February, when students, teachers and external parties will have all kinds of events. Students will receive stamps for attending events which count as attendance. In total students must receive 10 stamps over the two days. Lagningardagar are organized by the Lagningardagaráð. The purpose of Lagningardagar is to allow students to learn about topics of their own choosing, and while the theme days take place regular classes will not be in session. In celebration of the school’s 60th birthday this year, there will be a birthday theme.