Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð frumsýnir söngleikinn Djúpt Inn í Skóg föstudaginn 6. mars.
Rúmlega 100 nemendur koma að uppsetningu þessa söngleiks og við erum svo spennt að fá að sýna ykkur hvað við höfum gert. Hæfileikar svífa innan veggja MH og má finna hæfileikaríkt fólk ýmist á sviðinu eða á bakvið tjöldin. Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrir verkinu og Gunnlaugur Bjarnason er tónlistarstjóri. Nemendur hafa unnið hart að verkinu síðan í haust og skilar það sér svo sannarlega á sviðinu.
Miðasala fer fram á Tix.is . Nemendur í MH fá miðann á 3.990 kr. Við vonumst til þess að sjá ykkur djúpt inni í skóginum, á Miklagarði í MH!