Að mastera hreyfingu

Eins og margir vita stendur yfir keppni í hreyfingu hjá landsmönnum sem kallast Lífshlaupið (https://www.lifshlaupid.is/). Um leið og við hvetjum alla til að taka þátt og skrá daglega hreyfingu langar okkur að gorta okkur af afreksfólki í hreyfingu sem vinnur í MH.

Það eru ekki allir framhaldsskólar á Íslandi geta boðið nemendum sínum upp á að vera í líkamsrækt í skólanum sínum og enn færri getað státað sig af því að vera með tvær magnaðar konur sem hvor um sig eru afrekskonur á sínu sérsviði og miklar fyrirmyndir fyrir nemendur okkar og ekki síður okkur hin.

Þetta eru Erla Guðmundsdóttir og Sonja Sif Jóhannsdóttir.

 

 

 

 

 

 

 

Að ætla að telja upp öll afrek þessara hörkukvenna væri efni í aðra langa frétt en við ætlum bara að nefna þeirra allra nýjustu.

Erla byrjaði í fyrra að keppa í Ólympískum lyftingum og gerði sér lítið fyrir og setti sl. haust Íslandsmet í sínum aldursflokki.

Þetta met bætti hún svo um 1 kg um liðna helgi. Erla átti 3 gildar lyftur í snörun (57-60-63 kg) og 2 gildar lyftur í Clean&Jerk (74-81 kg). Þetta er þyngsta lyfta sem hún hefur náð á móti. Hrikalega vel gert. Stefnan er síðan sett á EM Masters og HM Masters síðar á árinu.

Sonja hefur í áraraðir verið einn okkar allra fremsti utanvegahlaupari en fyrir fimm árum lenti hún í alvarlegu slysi sem hafði mikil áhrif lífsgæði hennar. En með einstakri seiglu og þolinmæði (og óteljandi sjúkraþjálfaratímum og endurhæfingu) hefur hún masterað þetta bataferli og í fimmtugsafmælisgjöf á síðasta ári ákvað hún að bæta heilum járnkarli í safnið í Iron Man í Kaupmannahöfn. Fyrir þau sem ekki vita þá samanstendur Ironman af 3,8 km sundi, 180 km hjólreiðum og heilu maraþoni í lokin (42,2 km). Þar gerði hún sér lítið fyrir og náði besta tíma íslenskra kvenna á árinu (11:46:46) og er þar með hröðust í sínum aldursflokki.

Til hamingju stelpur. Þið eruð algjörir naglar!