Próftafla og umsóknir nemenda um breytingar

Próftafla nemenda fyrir vorönn 2011 er nú aðgengileg í Innu. Hægt er að sjá próftöfluna með því að fara í Innu og smella á Próftafla  á lista vinstra megin. Athugið að próftaflan er einungis aðgengileg í Innu. Umsókn um tilhliðrun ásamt útskýringu þarf að berast í tölvupósti til prófstjóra (gud@mh.is) í síðasta lagi föstudaginn 8. apríl. Guðmundur Arnlaugsson prófstjóri, gud@mh.is Dagskólanemar mega sækja um að hliðra próftöflu sinni ef:
  • Tvö próf eru á sama tíma
  • Þrjú próf eru á sama degi
  • Ef tvö löng próf, lengri en ein klukkustund hvort próf, eru á sama degi.

Ekki er leyft að breyta próftöflu vegna ferðalaga!

Ef þú þarft að láta færa til próf og uppfyllir ofangreind skilyrði getur þú sent prófstjóra tölvupóst gud@mh.is