22.08.2014
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá að lokinni skólasetningu kl. 8:30 þann 22. ágúst. Teaching will start after a
short commencement ceremony at 8:30 on August 22nd.
14.08.2014
Nú geta þeir nemendur sem greitt hafa skólagjöldin skoðað stundatöflu sína í Innu. Nýir
greiðslulistar eru keyrðir inn að morgni dags virka daga. Students who have paid their tuition fee can now check their timetable on Inna.
Nýnemar geta nálgast nánari upplýsingar, m.a. hvernig á að komast inn á Innu, og leiðbeiningar hér.
How to get into Inna, the school information system, instructions here
Þeir sem telja sig þurfa töflubreytingu eiga að sækja um sem allra fyrst. Breyttar töflur birtast í Innu um
helgina eða eftir því sem þær vinnast. Fyrstir koma fyrstir fá! Ef tafla á að vera tilbúin fyrir
fyrsta kennsludag þarf breytingabeiðni að berast eigi síðar en kl. 24:00 sunnudaginn 17. ágúst. If necessary apply for changes to your timetable as soon as
possible and before midnight on Sunday August 17.
Smellið hér til þess að fá eyðublað og sendið það síðan í viðhengi
á netfangið tafla@mh.is
Click on the line above, fill it out and send it as an attachment to tafla@mh.is
Áfangaframboð haust 2014 með upplýsingum um ný númer.
Nýnemar eiga að mæta á fund með rektor á hátíðarsal skólans fimmtudaginn 21.
ágúst kl. 13. New students are required to attend a meeting with the Principal in the school Auditorium at 1 pm on Thursday August
21.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá að lokinni skólasetningu kl. 8:30 þann 22. ágúst. Teaching will start
after a short commencement ceremony at 8:30 on August 22nd.
Bókalisti er aðgengilegur í Innu. The booklist is accesible in Inna.
10.08.2014
Aðgangi allra nemenda að Innu var lokað í júní vegna vinnu við stundatöflur. Stundatöflur þeirra nemenda sem greitt hafa
skólagjöldin verða aðgengilegar upp úr miðjum ágúst. Nánari upplýsingar verða hér á heimasíðunni þegar
nær dregur. Inna has been closed and will open again to those that have paid the school tuition when individual timetables are ready around the middle of August. More information
here around the middle of August.
Nýnemar eiga að mæta á fund rektors á Miklagarði, hátíðarsal skólans, fimmtudaginn 21. ágúst kl. 13:00
stundvíslega. All new students are required to attend a meeting with the school principal on Thursday, August 21st at 1 pm in the school auditorium.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá föstudaginn 22. ágúst. Teaching will start according to timetables on Friday, August 22nd. Hafið það gott í sumar og sjáumst hress í haust! Have a nice summer holiday!
02.06.2014
Umsóknarfresti nemenda sem ljúka grunnskóla í vor lýkur á miðnætti 10. júní. Sótt er um á Menntagátt
http://www.menntagatt.is/.
30.05.2014
Umsóknarfresti eldri nemenda þ.e. þeirra sem eru að koma úr öðrum framhaldsskólum lýkur á miðnætti laugardaginn 31. maí.
Sótt er um á Menntagátt www.menntagatt.is.
26.05.2014
Einkunnir eru aðgengilegar í Innu eftir kl. 12:00 mánudaginn 26. maí.
Dagskrá staðfestingardags þriðjudaginn 27. maí:
Viðtalstímar valkennara dagskóla verða frá 9:00 - 11:00
Prófasýning dagskóla og öldungadeildar verður frá 11:15 - 12:15. Nemendur eru hvattir til þess að nýta sér þetta
tækifæri til þess að skoða prófin.
Staðfestingu á vali dagskólanema þarf að vera lokið kl. 14:00 og skila þarf inn P-umsóknum fyrir kl. 11:30.
Hér eru nánari leiðbeiningar fyrir staðfestingu vals. Hér er listi yfir áfanga í boði á haustönn og listi
yfir áfanga sem falla niður.
25.05.2014
Í dag voru 177 stúdentar brautskráðir frá skólanum.
Til hamingju með daginn stúdentar!
24.05.2014
Útskriftarefni eiga að mæta á útskriftaræfingu laugardaginn 24. maí kl. 18:00 á Miklagarð hátíðarsal skólans.
Æfingin tekur um klukkustund. Þau sem alls ekki geta mætt þurfa að láta Pálma áfangastjóra vita fyrir æfingu.
19.05.2014
Hin árlega "Frönskukeppni framhaldsskólanna og franska sendiráðsins" var haldin nú í vor. Þemað var "frönsk tónlist og ég".
Nemendur skiluðu inn myndbandi þar sem þau sögðu frá því hvernig frönsk tónlist hefur fléttast inn í líf þeirra.
Alls tóku 5 skólar þátt. Verðlaunahafar voru tveir og var annar þeirra MH-ingurinn Sigrún Perla Gísladóttir. Hún hlaut að
verðlaunum þátttöku í menningartengdu námskeiði í sumar í París, ferð og uppihald að sjálfsögðu í boði
franska ríkisins. Til hamingju Sigrún Perla!
07.05.2014
Útskriftarefni munu kveðja skólann í dag með skemmtun á sal kl. 13:50. Að skemmtun lokinni býður skólinn útskriftarefnum og
kennurum í dimissjónkaffi í Útgarði. Gangi ykkur vel í prófum og próflestri dimitantar!