Fögnum sumri með kór MH

Miðvikudaginn 22. apríl, kl.18:00-18:45 fagnar Kór Menntaskólans við Hamrahlíð vel heppnuðu tónleikaferðalagi um Norðurland, með heimkomutónleikum í hátíðarsal skólans. Ókeypis aðgangur verður á tónleikana! Í kjölfar þeirra verður hægt að styrkja kórsjóð með frjálsum framlögum. Kórmeðlimir sjá um kynningar, einsöng og hljóðfæraleik.

Verið velkomin, sjáumst vonandi sem flest!