Þýskuþraut

Guðmundur konrektor, Katharína og Valgerður þýskukennarar og Íris námstjóri erlendra tungumála ásamt…
Guðmundur konrektor, Katharína og Valgerður þýskukennarar og Íris námstjóri erlendra tungumála ásamt nemendunum við verðlaunaafhendinguna.
Nemendur MH stóðu sig sérstaklega vel í þýskuþrautinni á dögunum. 150 nemendur tóku þátt á getustigi 1 frá 9 skólum. Lóa Margrét Gunnarsdóttir varð í fyrsta sæti og vann ferð á Eurocamp í sumar í Þýskalandi frá 20.-30.7.  Maja Kornelia Cur varð í fimmta sæti og fékk bókaverðlaun frá Þýska sendiráðinu og Hlynur Freyr Stefánsson varð í sjöunda sæti og fékk bókaverðlaun frá Þýska sendiráðinu.
 
37 nemendur tóku þátt á getustigi 2 frá 7 skólum og var það nemandi frá MH, Ragnheiður (Robin) Andrésdóttir sem fékk fyrstu verðlaun og vann ferð á Eurocamp í sumar í Þýskalandi frá 20.-30.7.
 
Einnig var stuttmyndakeppni og þar hrepptu þær Askja Lilja Finze og María Dís Gunnarsdóttir fyrstu verðlaun og fengu peningaverðlaun og bíómiða frá Félagi Þýskukennara.
Við óskum þeim öllum til hamingju með árangurinn.